Loka hluta af húsnæði Reykjalundar: 32 starfsmenn missa vinnuaðstöðu Lovísa Arnardóttir skrifar 30. nóvember 2023 14:15 Pétur Magnússon er forstjóri Reykjalundar. Hann segir stjórn harma þau óþægindi sem þetta hefur í för með sér. Endurhæfingarmiðstöðin Reykjalundur í Mosfellsbæ hyggst loka hluta af húsnæði sínu en komið hefur í ljós að nokkrar af byggingum heilbrigðisstofnunarinnar eru í bágu ásigkomulagi. Úttekt verkfræðistofu sýnir að óheilnæmt sé fyrir sjúklinga og starfsfólk að dvelja í húsnæðinu.
Frá þessu er greint í tilkynningu frá Reykjalundi. Stjórnendur Reykjalundar harma í yfirlýsingu þau óþægindi sem þetta hefur í för með sér fyrir sjúklinga og vinnu starfsfólks og skora á heilbrigðisyfirvöld að taka þátt í að finna farsælar lausn sem allra fyrst. Í yfirlýsingunni segir að gerðar verði ráðstafanir svo ekki þurfi að draga úr starfseminni en að hún verði takmörkuð á morgun. Þá má búast við því að lokunin hafi verulega áhrif á bæði sjúklinga sem koma utan af landi og þá sem eru hér á höfuðborgarsvæðinu. Alls missa 32 starfsmenn með þessu starfsaðstöðu sína auk þess sem hluta þess gistirýmis sem nýst hefur fólki af landsbyggðinni þarf að loka alfarið. Starfsfólki var tilkynnt um lokunina í hádeginu. Alls starfa 180 á Reykjalundi samkvæmt tilkynningu. Rætt verður við sjúklinga í framhaldinu. Fram kemur í yfirlýsingunni að þær byggingar sem þurfi að loka séu báðar hæðir C-álmu, efri hæð F-álmu og nokkur smáhýsi sem staðsett eru á lóð Reykjalundar og hafa verið notuð til gistingar fyrir sjúklinga utan af landi. Jafnframt þarf að loka nokkrum afmörkuðum svæðum í A-, B- og G-álmum Reykjalundar. Auk þessa verða nokkrar álmur settar í sérstaka hreinsun og regluleg aukaþrif þar sem ástandi þess húsnæðis er ábótavant en er enn sem komið er ekki talið heilsuspillandi. Reykjalundur er í Mosfellsbæ. Vísir/Vilhelm „Stjórnendur Reykjalundar óskuðu eftir úttekt á húsnæðinu en starfsfólk og stjórnendur hafa haft áhyggjur af því að ákveðnir hlutar af húsnæði Reykjalundar stæðust ekki kröfur, hvorki til veitingar heilbrigðisþjónustu til viðkvæmra sjúklingahópa né sem vinnuaðstaða starfsfólks. Viðamikil úttekt verkfræðistofu á húsnæðinu hófst síðasta sumar og staðfestir hún grun um ófullnægjandi ástand hluta af húsnæðinu. Framkvæmdastjórn Reykjalundar hefur því tekið ákvörðun um að loka þeim hluta af húsnæðinu frá og með næstu helgi,“ segir í yfirlýsingu. Þar kemur jafnframt fram að ekki liggi fyrir hvernig eigi að standa að viðgerðum eða fjármögnum þeirra og að engir fjármunir séu eyrnamerktir í viðhald eða uppbyggingu á aðstöðu í þjónustusamningi Reykjalundar við Sjúkratryggingar Íslands. Sjúkratryggingum Íslands hefur verið tilkynnt um lokunina en þau eru samningsaðili af hálfu ríkisins. Reynt verðu að lágmarka áhrif lokunarinnar á sjúklinga en ljóst er að áhrifin verða einhver auk þess sem óvissa sé um það hversu lengi lokunin mun vara. Þá hefur heilbrigðisráðherra verið upplýstur og starfsfólk heilbrigðisráðuneytisins. Greiðslur megi aðeins nýta fyrir sjúklinga - ekki í viðhald Í yfirlýsingu frá Reykjalundi er það útskýrt að samkvæmt þjónustusamningi þeirra við SÍ má aðeins nýta greiðslur frá þeim til þjónustu við sjúklinga. Núverandi samningur rennur út við lok marsmánaðar á næsta ári. „SÍBS hefur frá stofnun Reykjalundar greitt kostnað við uppbyggingu og viðhald og útvegað Reykjalundi húsnæði endurgjaldslaust og er öll starfsemi þessara aðila óhagnaðardrifin. Eftir því sem húsnæðið hefur orðið eldra og viðhaldsfrekara þá dugar styrktar- og söfnunarfé SÍBS ekki lengur til og því hefur einungis verið unnt að sinna lágmarksviðhaldi á Reykjalundi síðustu ár. Stjórnvöld hafa verið upplýst um að húsnæðismál Reykjalundar væru ekki sjálfbær,“ segir enn fremur í yfirlýsingunni. Takmörkuð starfsemi Takmörkuð starfsemi verður á Reykjalundi á morgun þegar reynt verður að skipuleggja nýjar starfsstöðvar fyrir starfsfólk til bráðabirgða. „Slíkt fyrirkomulag gengur þó ekki upp til lengri tíma. Það er von Reykjalundar að hægt verði að finna lausn sem tryggir samfellda og órofna þjónustu við sjúklinga til bæði skamms og langs tíma ásamt því að geta boðið upp á góða vinnuaðstöðu fyrir starfsfólk. Kannaðir verða möguleikar á leigu færanlegra húseininga eða flutningi tímabundið í annað húsnæði. Vandinn er að litlir sem engir fjármunir eru til staðar til að greiða fyrir leigu slíks húsnæðis, eða til að hefja viðgerðir á núverandi húsnæði,“ segir í yfirlýsingunni en hægt er að lesa hana í heild sinni á heimasíðu Reykjalundar.
Heilbrigðismál Sjúkratryggingar Mosfellsbær Tengdar fréttir „Það er ótrúlegt hvað þessi veikindi hafa hjálpað mér mikið“ Líf hárgreiðslukonunnar og vöruhönnuðarins Theodóru Mjallar Skúladóttu, breyttist til frambúðar eftir að hún veiktist af Covid-19 fyrir þremur árum. Hún greindist með taugasjúkdóm í kjölfarið sem lýsir sér meðal annars í tíðum flogaköstum. 11. október 2023 20:00 „Það hvarflaði ekki að neinum sem sá mig að eitthvað væri að hrjá mig” „Parkinson læðist að manni eins og draugur um nótt. Þú áttar þig ekki á truflunum af hans völdum fyrr en þær eru farnar að íþyngja þér verulega,“ segir Sigrún Jónsdóttir en hún greindist með Parkinson sjúkdóminn fyrir átta árum, þá rétt rúmlega fimmtug. 20. ágúst 2023 20:02 Endurhæfing Reykjalundar á sannarlega mikilvæga bakhjarla Heilbrigðisþjónusta er einn af hornsteinum samfélagsins. Til að við hlúum sem best að þessum dýrmæta grunni samfélagsins er mikilvægt að þeir fjármunir sem fara í heilbrigðisþjónustu séu nýttir eins markvisst og mögulegt er með það að leiðarljósi að hámarka þjónustu og gæði. 3. febrúar 2023 09:01 Mest lesið Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Innlent Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Erlent Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Erlent Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Innlent Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Innlent Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Erlent Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Framtíð Foreldrahúss í óvissu: Nær ekki í Ingu Sæland Innlent Umsókn Samhjálpar samþykkt en afgreiðslu frestað um viku Innlent Fleiri fréttir Taka umsókn Samhjálpar um kaffistofuna fyrir í dag Stefán Þór leiðir jafnaðarmenn í Fjarðabyggð Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Framtíð Foreldrahúss í óvissu: Nær ekki í Ingu Sæland Ákvarða stýrivexti í skugga versnandi verðbólguhorfa Hugsanleg veggjöld á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi: „Þessi áform mega ekki ná fram að ganga“ Ekið á skólarútu Viðskiptavinir hafi fengið fjölda svikapósta Aðlögun að ESB sé þegar hluti af daglegu lífi Komu biluðum báti til bjargar Leita til háskólans fyrir íslenskupróf Mesta kvikusöfnun á milli eldgosa frá upphafi eldgosahrinu Niðurrifið á göngubrúnni hafið Vegagerðin hafnaði tilboði Icelandair í Ísafjarðarflugið Leggur til að atkvæðagreiðslunni verði frestað Alvarlegt að svo ill meðferð á dýrum sé metin refsilaus Þorsteinn tekur við formennsku af Fanneyju Birnu Vilja hætta við Borgarlínu en stórefla strætisvagnakerfið Bein útsending: Ársfundur Samorku Atvinnuhúsnæði á Ísafirði rýmt eftir snjóflóð Kviknaði í kaffibrennsluofni Vaxtaákvörðun framundan og snjóflóðahætta fyrir vestan Um 44 prósent hlynnt forgangsröðun í samgönguáætlun Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Árekstur við Suðurlandsbraut „Persónulegir þættir koma hér hvergi nærri“ Fyrri umræðu um þjóðaratkvæði lokið Sjö handteknir í tengslum við meiriháttar líkamsárás Eins og ef einhver myndi hella vatni yfir tölvu Sjá meira
„Það er ótrúlegt hvað þessi veikindi hafa hjálpað mér mikið“ Líf hárgreiðslukonunnar og vöruhönnuðarins Theodóru Mjallar Skúladóttu, breyttist til frambúðar eftir að hún veiktist af Covid-19 fyrir þremur árum. Hún greindist með taugasjúkdóm í kjölfarið sem lýsir sér meðal annars í tíðum flogaköstum. 11. október 2023 20:00
„Það hvarflaði ekki að neinum sem sá mig að eitthvað væri að hrjá mig” „Parkinson læðist að manni eins og draugur um nótt. Þú áttar þig ekki á truflunum af hans völdum fyrr en þær eru farnar að íþyngja þér verulega,“ segir Sigrún Jónsdóttir en hún greindist með Parkinson sjúkdóminn fyrir átta árum, þá rétt rúmlega fimmtug. 20. ágúst 2023 20:02
Endurhæfing Reykjalundar á sannarlega mikilvæga bakhjarla Heilbrigðisþjónusta er einn af hornsteinum samfélagsins. Til að við hlúum sem best að þessum dýrmæta grunni samfélagsins er mikilvægt að þeir fjármunir sem fara í heilbrigðisþjónustu séu nýttir eins markvisst og mögulegt er með það að leiðarljósi að hámarka þjónustu og gæði. 3. febrúar 2023 09:01