Bíó og sjónvarp

„Ætli þú megir ekki eiga þessa tuttugu dali sem þú skuldar mér“

Samúel Karl Ólason skrifar
Matt LeBlanc pg Matthew Perry.
Matt LeBlanc pg Matthew Perry. Getty/Dave Benett

Matt LeBlanc segir að stundirnar sem hann varði með vini sínum Matthew Perry, séu meðal þeirra bestu í lífi hans. Þeir léku þá Joey og Chandler í hinum gífurlega vinsælu þáttum Friends. Matthew Perry féll frá í lok síðasta mánaðar.

LeBlanc birti í dag færslu á Instagram þar sem hann syrgði vin sinn og sagði það hafa verið heiður að deila með honum sviðinu. Það væri sömuleiðis heiður að geta kallað Perry vin sinn.

„Ég mun alltaf brosa þegar ég hugsa um þig og mun aldrei gleyma þér. Aldrei,“ skrifaði LeBlanc. 

„Dreifðu úr vængjunum og fljúgðu bróðir. Þú ert loks frjáls." 

LeBlanc endaði svo færsluna á: „Ætli þú megir ekki eiga þessa tuttugu dali sem þú skuldar mér."


Tengdar fréttir

Perry lagður til hinstu hvílu við hlið annarra stórstjarna

Leikarinn Matthew Perry var lagður til hinstu hvílu í Forest Lawn kirkjugarðinum í Hollywood Hills í lok síðustu viku og er jarðaður við hlið annarra stórstjarna í grafreitnum Sanctuary of Treasured Love, en svæðið er afgirt og vaktað.

Perry borinn til grafar

Leikaranum Matthew Perry var fylgt til grafar í Los Angeles í gær. Fjölskylda, vinir og vandamenn voru viðstödd athöfnina.

Yfir­lýsing frá Vinunum um frá­fall Perry

Leikararnir úr þáttunum Friends segjast niðurbrotin eftir fráfall Matthew Perry. Jennifer Aniston, Courtney Cox, Lisa Kudrow, Matt LeBlanc og David Schwimmer sendu frá sér yfirlýsingu í kvöld.

Dánarorsök Perrys óljós

Formlegri niðurstöðu krufningar gamanleikarans Matthews Perry hefur verið frestað þar til niðurstöður eiturefnarannsóknar liggja fyrir.

Stjörnurnar minnast Matthew Perry

Leikarar, forsætisráðherra, íþróttalið og jafnvel sjónvarpsstöðvar eru meðal þeirra sem hafa minnst leikarans Matthew Perry sem fannst látinn á heimili sínu í Los Angeles í gær. Perry, sem lék, eins og flestir vita, Chandler Bing í þáttunum Friends, var 54 ára gamall.

Matthew Perry látinn

Matthew Perry, ein af stjörnum gamanþáttanna Friends, er látinn 54 ára gamall. Perry lék Chandler Bing í tíu þáttaröðum Friends á árunum 1994 til 2004. Þættirnir eru einhverjir vinsælustu sjónvarpsþættir sögunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×