Körfubolti

„Getum öll séð það að það verður röskun á móta­haldi“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Hannes S. Jónsson segir að ekki sé hægt að fara eftir reglubókinni á tímum sem þessum.
Hannes S. Jónsson segir að ekki sé hægt að fara eftir reglubókinni á tímum sem þessum. Stöð 2

Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri Körfuknattleikssambands Íslands, segir að líta verði framhjá öllum reglum sambandsins varðandi heimaleiki Grindvíkinga í þessum fordæmalausu aðstæðum.

Bæði karla- og kvennalið Grindavíkur leika í Subway-deildunum í körfubolta. Kvennaliðið á heimaleik gegn Þór Akureyri á laugardag en karlaliðið útileik gegn Hamri frá Hveragerði á föstudagskvöld. Ljóst er að liðin geta hvorki æft né spilað í nýju íþróttahúsi í Grindavík næstu vikurnar.

„Þetta er eitthvað sem er ekki í reglubókinni góðu. Við erum í rauninni að taka dag fyrir dag og leyfðum helginni að líða. Númer eitt, tvö og þrjú er að leyfa Grindvíkingum að reyna ná áttum, eins og hægt var. Við vorum í góðu sambandi við körfuknattleiksdeildina og formann Grindavíkur. Það var númer eitt, tvö og þrjú núna um helgina.“

„Í dag erum við að reyna sjá hvernig næstu dagar geta farið. Mótahaldið okkar er stórt, Grindavík er risastór körfuknattleiksdeild með fullt af iðkendum. Held við getum öll séð það að það verður röskun á mótahaldi. Verður reynt að finna einhvern flöt hvernig við getum haldið áfram en það verður gert í samráði við Grindvíkinga og hvernig Grindvíkingar vilja gera það.“

„Reglugerðir segja ýmislegt en þetta eru fordæmalausir tímar. Í þessu tilfelli, þótt við hjá KKÍ séum mjög föst fyrir þegar kemur að reglugerðum þá verðum við að horfa út fyrir það hér. Það er á svona stundum sem maður tekur reglugerðarbókina og hendir henni aftur fyrir haus og reynir að horfa fram á við.“

„Við munum leysa þá hluti sem þarf að leysa. Íþróttafélögin í landinu hafa verið mjög dugleg að bjóða fram aðstoð. Þetta er allt að gerast, það er allt í vinnslu. Vonandi verður þetta sem stystur tími en hlutirnir leysast og við tökum einn dag í einu eins og staðan er núna,“ sagði Hannes að endingu.

Innslagið úr Sportpakka Stöðvar 2 má sjá í heild sinni í spilaranum ofar í fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×