Þrjú geta unnið titilinn en aðeins eitt þeirra getur fengið bikarinn í leikslok Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. nóvember 2023 14:00 Guðrún Arnardóttir og félagar í FC Rosengård urðu sænskir meistarar í fyrra og fengu þá bikarinn. @fcrosengard Það er mikil spenna fyrir lokaumferð sænska kvennafótboltans en þrjú lið geta unnið titilinn í lokaumferðinni um næstu helgi.
Hammarby er efst með 56 stig en bæði Häcken og Linköping eru aðeins einu stigi á eftir. Eins og sést á þessu þá er spennan mjög mikil í titilbaráttunni þegar 25 leikir eru að baki. @sportbladet Bikarinn sem er í boði er nefndur eftir Viktoríu krónprinsessu. Hammarby heimsækir Norrköping í lokaleiknum og þar verður bikarinn staðsettur. Hinir leikirnir sem skipta máli í titilbaráttunni fara fram á heimavelli Häcken (mætir Pitea) og á heimavelli Linköping (mætir Kristianstad). Það er ekki langt á milli Linköping og Norrköping (35 mínútur í bíl) en mun lengra til Häcken sem er í Gautaborg. Bikarinn fer þó aðeins á loft vinni Hammarby titilinn. Það eru ekki til eftirlíkingar af aðalbikarnum sem gæti þá verið á hinum völlunum. Það er aftur á móti til fleiri útgáfur af karlabikarnum og svona kæmi því aldrei upp hjá þeim. Það verður heldur ekki þyrla á ferðinni á milli leikstaða eins og við Íslendingar þekkjum frá árum áður. Gert Nilsson hjá sænska knattspyrnusambandinu segir að reglan sé að bikarinn verði hjá því liði sem er efst fyrir lokaumferðina. Vinni Häcken eða Linköping sænska titilinn um næstu helgi þá fá liðin ekki bikarinn afhentan heldur aðeins gullpeninga. Aftonbladet fjallar um málið og kannski kallar sú umfjöllun á það að sænska sambandið finni betri lausn.
Sænski boltinn Mest lesið Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Íslenski boltinn Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Orri hetjan í fyrsta sigrinum Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Martröð Alberts og félaga í upphafi leiktíðar Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Þróttur - Þór/KA 0-0 | Markalaust í Laugardalnum Grótta í Bestu deild kvenna í fyrsta sinn Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ „Allt liðið sem og félagið í heild stigið upp“ Campbell skoraði í góðum sigri nýliðanna Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Hlín með þrennu í öruggum sigri Malmö Ari var á skotskónum og tryggði Elfsborg í Evrópusæti Íslendingaliðið Kristianstad sótti öll þrjú stigin Uppgjörið: Víkingur - Grindavík/Njarðvík 3-0 | Annar sigur Víkings spyrnti liðinu frá botninum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-2 | Lyftu sér upp úr fallsæti Emelía og félagar enn með fullt hús stiga Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Sjá meira