Innlent

Fastakúnna og ein­stakrar vin­konu minnst á Horninu í dag

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Dagný sat alltaf við sama borð, númer sjö, á sama stólnum. Borðið var frátekið fyrir hana í dag.
Dagný sat alltaf við sama borð, númer sjö, á sama stólnum. Borðið var frátekið fyrir hana í dag. Aðsend/Hornið

Starfsfólk veitingastaðarins Hornsins minntist fastakúnna og einstakrar vinkonu í dag. Borð sjö sem hún Dagný sat alltaf við var frátekið fyrir hana, og þar stóð eftirlætisdrykkurinn hennar, kók með engum klaka.

Veitingahúsið Hornið er elsti pizzustaður landsins. Staðurinn er fjölskyldurekinn og hafa eigendurnir myndað persónulegt samband við marga viðskiptavini og fastakúnna. Dagný Kristjánsdóttir var einn þeirra.

„Dagný var fastakúnni í mörg ár, örugglega tíu til fimmtán ár,“ segir Ólöf Helga Jakobsdóttir, yfirmatreiðslumaður og rekstrarstjóri Hornsins.

„Hún sat alltaf á sama borði, borði sjö, á sama stólnum. Hún kom yfirleitt yfirleitt um klukkan ellefu, um leið og við opnuðum dyrnar, stundum stóð hún fyrir utan og beið eftir okkur þegar við opnuðum.“

„Þið eruð hérna, þið eruð vinir mínir.“

Dagný pantaði sér alltaf það sama, kók með engum klaka. Það var tilfallandi hvort hún fékk sér að borða, en yfirleitt var hún bara að koma til að hitta starfsfólkið og spjalla. Á milli þeirra myndaðist einstakt vinasamband.

Systkynin Ólöf Helga og Jakob Reynir við borðið hennar Dagnýjar í dag. Vísir/Egill

Ólöf rifjar upp þegar Dagný pantaði sér eitt sinn borð á laugardagskvöldi, sem var óvenjulegt, enda kom hún yfirleitt klukkan ellefu á morgnanna.

„Þá hringdi hún og bað um lítið borð, en ekki borðið sem hún situr vanalega við. Við sögðum að það væri ekkert mál og svo spurði ég hvort það væri eitthvað tilefni. Hún sagði: „Já ég ætla bara að fara út svona um helgi og hitta vini mína.“ Svo kemur hún á laugardagskvöldið og við spyrjum hvort vinir hennar séu á leiðinni eða hvort hún vilji panta. 

Þá segir hún:„Þið eruð hérna, þið eruð vinir mínir.“

„Þannig það var bara þessvegna sem hún var að koma út að borða, við vorum vinir hennar og hún var vinur okkar.“

Borð sjö frátekið fyrir Dagný í dag

Dagný lést síðastliðinn mánudag, aðeins 33 ára, eftir erfið veikindi. Hennar var minnst á Horninu í dag. Þegar fréttastofa leit við í hádeginu í dag var setið við hvert borð. Nema við borð sjö, þar sem Dagný sat svo oft. Það var frátekið fyrir hana í dag, og að sjálfsögðu stóð drykkurinn hennar þar, kók með engum klaka. 

Einkennisdrykkur Dagnýjar, kók með engum klökum, stóð á borðinu sem var frátekið í hennar nafni í dag.Vísir/Egill

„Það kom ekkert annað til greina,“ segir Ólöf.

„Að sjálfsögðu tökum við borðið hennar frá og settum kók á borðið í hennar minningu. Hún verður hérna með okkur í dag á borðinu sínu.“

Myndin er tekin á fjörutíu ára afmæli Hornsins fyrir fjórum árum. Dagný færði staðnum skúringafötu, moppu og borðtuskur í tilefni dagsins.Ólöf Helga Jakobsdóttir.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×