Innlent

Að­stand­endur Muggs and­vígir nýrri og breyttri út­gáfu af Dimmali­mm

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Sagan af Dimmalimm í upprunalegri útgáfu og nýrri útgáfu. 
Sagan af Dimmalimm í upprunalegri útgáfu og nýrri útgáfu.  Forlagið/Óðinsauga

Útgáfufyrirtækið Óðinsauga tilkynnti fyrir skömmu að barnabókin Sagan af Dimmalimm eftir Guðmund Thorsteinsson, Mugg, verði gefin út í nýrri útgáfu í október. Aðstandendur Muggs segja ósiðlegt að útgáfan verði undir hans nafni því verkið sé ekki eftir hann þegar myndum hans hefur verið skipt út.

Geir Rögnvaldsson, dóttursonur Guðrúnar systur Muggs, segir bókina, sem móðir hans og systurdóttir Muggs, Helga Egilson, fékk upprunalega í þriggja ára afmælisgjöf, vera fyrstu Íslensku myndasöguna (e. picture story). Verkið samanstandi bæði af sögunni og myndunum, myndirnar séu aðalatriðið og ekki sé hægt að sundurgreina textann og myndirnar. Því feli nýja útgáfan í sér grundvallarbreytingu á verkinu. 

„Af því að myndirnar eru aðalatriðið en ekki textinn, þá fetti ég ekki fingur út í það þó hún komi með óbreyttan texta,“ segir Geir í samtali við Vísi. En það sem aðstandendunum svíður sé að verið sé að nota nafn Muggs við verk sem er ekki hans. 

Sýnishorn af umræddri útgáfu má sjá hér að neðan.

„Ég geri engar aðrar kröfur en að hann breyti nafninu, að það standi ekki Guðmundur og það standi ekki Dimmalimm,“ segir Geir. Hann kveðst hafa ítrekað skrifað til Hugins og sagt honum að fjölskyldunni litist ekki á að nafn Muggs yrði notað í slíkum tilgangi en Huginn hafi ekki fallist á að breyta útgáfunni. 

„Hálfnöturleg kveðja“

Geir segir málið viðkvæmt vegna þess að á næsta ári verði hundrað ára ártíð Muggs. „Þetta er hálfnöturleg kveðja að okkur finnst, á þessum tímamótum,“ segir hann. 

Í bréfi sem aðstandendur Muggs sendu á Huginn Þór Grétarsson, eiganda útgáfunnar Óðinsauga, segir að það hljóti að vera lögfræðilegt álitamál hvort um fölsun á listaverki sé að ræða. „Að okkar mati er framsetning verksins óásættanleg með hliðsjón af framangreindu, og gerum við þá kröfu að öll tengsl séu rofin milli hins nýja verks og Dimmalimm. Verði verkið gefið út í núverandi mynd er allur réttur áskilinn,“ segir í bréfinu.

Bréfið í heild sinni má nálgast hér að neðan.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×