Ryder Cup fer fram um helgina á Marco Simone vellinum í Róm á Ítalíu. Fyrir hádegi í dag var kepptar fjórar viðureignir í fjórmenningi (e. foursome) og eftir hádegi verður keppt í fjórum betri bolta (e. fourball). Á morgun verður sama fyrirkomulag en á sunnudag verður keppt í tvímenningskeppni, alls 28 viðureignir samtals.
Racing to the first tee 🏁#RyderCup pic.twitter.com/Xzy7FGfyMt
— Ryder Cup (@rydercup) September 29, 2023
Mikil eftirvænting ríkir fyrir mótið sem haldið er annað hvert ár til skiptis í Bandaríkjunum og Evrópu. Sænski kylfingurinn Ludvig Åberg vakti athygli fyrir spilamennsku sína í morgun en hann er að spila í fyrsta skipti á mótinu. Ludvig er aðeins 23 ára gamall en þó ekki yngsti meðlimur í liði Evrópu, Daninn Nicolai Hojgaard leikur í keppninni eftir hádegi, 22 ára að aldri.
Á sjöundu holu var spænski kylfingurinn Jon Rahm hársbreidd frá því að setja holu í höggi, en það hefði verið í aðeins sjöunda skipti í sögu mótsins.
Jon Rahm was so close to just the SEVENTH hole-in-one in Ryder Cup history 🤯 #RyderCup pic.twitter.com/phe1vfXc6Y
— Ryder Cup (@rydercup) September 29, 2023
Þrátt fyrir sannfærandi forystu Evrópuliðsins eftir fyrstu umferð geta hlutirnir breyst fljótt um helgina. Alls þarf 14 stig til að vinna mótið og því nóg eftir í pottinum fyrir lið Bandaríkjanna.
Hér má sjá seinni viðureignir dagsins. Keppni hefst á nýjan leik kl. 10:25 á íslenskum tíma.
This afternoon's four-ball pairings.@ROLEX | #RyderCup pic.twitter.com/47Rnh2WHDI
— Ryder Cup (@rydercup) September 29, 2023
Ryder Cup verður sýndur í beinni útsendingu alla helgina á Vodafone Sport.