Lífið

Fékk milli­nafnið svo hún yrði ekki önnur Edda Björg­vins

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Edda útilokar ekki að hún muni einn daginn feta í fótspor föður síns Björgvins Franz í leiklistinni. Kvikmyndataka heillar hana mest.
Edda útilokar ekki að hún muni einn daginn feta í fótspor föður síns Björgvins Franz í leiklistinni. Kvikmyndataka heillar hana mest.

Edda Lovísa Björg­vins­dóttir segir því hafa fylgt á­kveðin pressa að bera nafn ömmu sinnar Eddu Björg­vins­dóttur. For­eldrar hennar hafi gefið henni milli­nafnið Lovísa ef ske kynni að nafnið væri of stórt til að bera. Hún segir fjöl­skylduna hafa átt erfitt með On­lyFans ferilinn í upp­hafi og segist Edda stefna á kvik­mynda­gerð.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í Einka­lífinu þar sem Edda Lovísa er gestur. Edda ræðir þar æskuna, hvernig það var að alast upp í einni þekktustu leik­listar­fjöl­skyldu Ís­lands, árin á On­lyFans og reynsluna af miðlinum sem varð til þess að hún hætti.

„Það var lit­ríkt og ég tek alls­konar kúltúr úr því,“ segir Edda um það hvernig var að alast upp á heimili þeirra Björg­vins Franz Gísla­sonar og Berg­lindar Ólafs­dóttur og vera í þokka­bót barna­barn tveggja þekktustu leikara Ís­lands þeirra Eddu Björg­vins­dóttur og Gísla Rúnars Jóns­sonar.

Horfa má á þáttinn í heild sinni hér fyrir neðan.

„Að alast upp í leik­húsi var á­kveðin stemning. Það eina sem mér fannst leiðin­legt var að ég gat ekki verið í friði með pabba mínum. Þegar við fórum í sund þá komu krakkar upp að okkur og kölluðu „Björg­vin Franz!“ og ég man að mér fannst það mjög leiðin­legt,“ segir Edda á léttum nótum.

Hún segist hafa verið mjög náin afa sínum Gísla Rúnari, sem lést árið 2020. Hún sakni hans mjög og það sé skrítið þegar sorg manns sé á allra vörum.

„Það er svo­lítið skrítið. Þetta er per­sónu­legt, og svo mikið svona okkar en ekki ykkar. Á einum tíma­punkti fannst mér þetta skrítið en á öðrum tíma­punkti fannst mér þetta fal­legt. Að það væri fólk að syrgja með okkur og fleiri en bara við og vita að hann hafi verið elskaður af öðrum. Það var líka mjög fal­legt.“

Edda Lovísa saknar afa síns Gísla Rúnars mjög. Hér er hún með honum og Ladda á góðri stundu. 

Telur sig hafa fengið bíl­próf út á nafnið

Edda segist vera hand­viss um að hún ætli sér að vinna við kvik­mynda­gerð í fram­tíðinni, þó hún úti­loki ekki að feta í fót­spor fjöl­skyldunnar í leik­listinni.

„Ég loka ekki á neitt. Þegar þetta er mest megnið af fjöl­skyldunni þá er erfitt að taka ekki inn það sem þau eru að gera,“ segir Edda á léttum nótum.

Hvað með grínið? Nú er amma þín mögu­lega fyndnasta kona landsins?

„Hundrað prósent. Allan daginn. Að bera nafnið hennar er mjög ógn­vekjandi. Ég held ég leyfi henni bara að vera fyndni grín­istinn og kannski ver ég bara Edda Björg­vins­dóttir, kvik­mynda­töku­kona.“

Eðli málsins samkvæmt var Edda Björgvins himinlifandi með nöfnu sína Eddu Lovísu eins og Séð og heyrt fjallaði um á sínum tíma. 

Fannstu fyrir pressu, að heita Edda?

„Já, ég fann fyrir því. Fólk var mikið að segja mér að ég ætti nöfnu. En for­eldrar mínir gáfu mér nafnið Lovísu ef mér skyldi finnast Edda Björg­vins of þungt. „Þú getur alltaf farið í Edda Lovísa ef þú vilt ekki hitt.“

Edda segir það vera mikil for­réttindi að bera nafn ömmu sinnar og nefnir sem dæmi að lík­lega hafi hún fengið bíl­próf út á nafnið.

„Ég fór í bíl­prófið og próf­dómarinn sá nafnið og spurði hvort ég ætti nöfnu. Svo töluðum við um þetta og allt í einu sagði hann mér að taka bara beygju inn, við værum búin,“ segir Edda hlæjandi.

Þurftirðu ekki einu sinni að bakka?

„Ekkert að bakka. Hann sagði bara að bíl­prófið væri búið og bað mig um að segja hæ við ömmu mína.“

Mikil spenna fyrst

Edda, sem er hætt á On­lyFans, segir að þegar hún hafi byrjað á On­lyFans árið 2020 hafi verið mikil spenna í fjöl­skyldunni hennar. Það hafi aðal­lega verið meðal eldri fjöl­skyldu­með­lima.

„Þetta var erfitt fyrir eldra fólkið í fjöl­skyldunni. Skiljan­lega. Sem ég skildi alveg. Þau voru bara hrædd um mig. Það var enginn vondur við mig, það voru allir mjög góðir við mig en ég var að hræða ömmur og afa og frænkur og frænda.“

Edda segir sína nánustu fjölskyldumeðlimi hafa sýnt sér mikinn skilning þegar hún byrjaði á OnlyFans.

Edda segir málið aldrei hafa verið rætt beint við sig. Hún hafi bara vitað af um­talinu og segir hún að vera sín á miðlinum hafi haft nei­kvæð á­hrif á tengsl sín við suma í fjöl­skyldunni.

„En það voru sumir sem maður var kannski ekkert alveg það náinn,“ segir Edda. Allir sínir nánustu hafi sýnt sér mikinn stuðning. Spennan í fjöl­skyldunni hafi aðal­lega verið í byrjun.

„Þá var þetta líka svo nýtt. Ég held ég hafi verið þriðja stelpan á Ís­landi til að byrja á On­lyFans og þau kannski föttuðu ekki hvað ég væri beint að gera en svo róaðist þetta og svo varð þetta ekkert mál restina af tímanum sem ég var á On­lyFans.“

Horfa má á viðtalið við Eddu Lovísu í Einkalífinu á Vísi í heild sinni hér. 


Tengdar fréttir

Edda Lovísa hætt á On­lyFans eftir hótanir og eigið marka­leysi

Edda Lovísa Björgvinsdóttir er hætt að framleiða klám á OnlyFans. Hún segist ekki geta farið lengur ein niðrí bæ og þá hefur hún þurft að flytja eftir að áskrifandi á síðunni komst að því hvar hún átti heima. Hún segist hafa verið hætt að virða eigin mörk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×