Lífið

Þrjár utanlandsferðir á tólf dögum

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Nóg er um að vera hjá Prettyboitjokkó og Gústa B, sem er DJ tónlistarmannsins.
Nóg er um að vera hjá Prettyboitjokkó og Gústa B, sem er DJ tónlistarmannsins. Gústi B.

Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, þekktur sem Prettyboitjokkó, og Ágúst Beinteinn Árnason, eða Gústi B, eru staddur á Ibiza að fagna góðu gengi lagsins Skína sem hefur verið í fyrsta sæti íslenska listans á FM957 þrjár vikur í röð.

„Við lítum á þetta sem vinnuferð þar sem við erum að kanna klúbbastemmninguna hérna úti og sjá hvernig við getum tekið giggin okkar á næsta level,“ segir Patrik og lýsir henni sem allt annarri en þekkist hérlendis.

„Það er allt öðruvísi stemning á klúbbunum hérna á miðað við heima. Fólk er ekki pissfullt að öskra í eyrun á hvort öðru, bara nóg pláss og allir að dansa.“

Missa ekki af giggi

Patrik fékk Gústa til liðs við sig í sumar til að sinna störfum sem plötusnúður á viðburðum. 

Aðspurðir hvernig samvinnan hafi gengið fara þeir fögrum orðum um hvern annan. „Held við séum báðir nokkuð slakir þrátt fyrir nokkra hnökra sem viðkoma ferðalögum,“ segir Gústi og hlær.

„Þú lést okkur hins vegar missa af fluginu okkar,“ skýtur Patrik inn í.

„Það var nú meira bara svona sameiginlegt klúður,“ segir Gústi blíðlega.

„Sameiginlegt klúður? Þú varst að borða pönnukökur þegar það stóð Gate Closing?“ bætir Patrik við.

Félagarnar hafa verið á ferði og flugi síðustu daga.Gústi B.

Patrik og Gústi fóru í svokallaða pókerferð til Slóvakíu í byrjun mánaðar. Aðspurður hvort þeir hafi komið ríkari heim segjast þeir ekki verðleggja góðar minningar. „Við græddum þó ansi lítið fjárhagslega.“ 

Með þeim var hópur þjóðþekktra listamanna, Kristmund Axel, Herra hnetusmjör og leikarann Aron Má Ólason.

 „Við fórum fyrr heim úr þeirri ferð til að spila á Októberfest og árshátíð Play. Strax eftir giggin flugum við til Mallorca, aðeins að kanna svæðið með tilheyrandi skemmtun, Jetski og Parasailing,“ segir Gústi.

„Við erum að vinna með það að fara út á sunnudögum og mæta heim á fimmtudögum til að ná að gigga um helgar,“ bætir hann við.

Hótelsvíta og ný plata

Félagarnir er nú staddir á glæsihótelinu Ushuaia sem er aðeins fyrir fullorðna. Kærasta Patriks, Friðþóra, er með þeim í ferðinni og gista þau á svítu hótelsins sem kostar rúmar hundrað þúsund krónur nóttin samkvæmt vef Booking.com

Patrik Atlason.

Patrik skaust upp á stjörnuhimininn í byrjun árs þegar hann gaf út lagið, Prettyboitjokkó. Ný plata er nú væntanleg þar sem hann fékk einvalalið tónlistarmanna til liðs við sig.  

„Það er ekki ólíklegt að það verði nokkrir hittarar sem eigi eftir að slá í gegn,“ segir Patrik spenntur fyrir komandi tímum.


Tengdar fréttir

Patrik á toppnum

Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, jafnan þekktur sem prettyboitjokko, situr á toppi Íslenska listans á FM í þessari viku ásamt Luigi með lagið Skína.

Einhleypan: „Mamma bannar mér að fara út í pólitík og fá mér húðflúr“

Útvarpsmaðurinn og plötusnúðurinn Ágúst Beinteinn, þekktur sem Gústi B, lýsir sjálfum sér sem duglegum, metnaðarfullum og kolrugluðum ungum manni. Hann heillast að sjálfsöryggi þegar það kemur að samskiptum kynjanna og segir kokteilar og píla í miðbænum uppskrift að hinu fullkomna stefnumóti.

„Örvæntingin um samþykki annarra var stöðugur eltingarleikur“

Tónlistarmaðurinn Júlí Heiðar Halldórsson reis úr þrettán ára dvala þegar hann gaf út lagið Ástin heldur vöku árið 2021. Hann segir mikla sjálfsvinnu hafi hjálpað honum að snúa blaðinu við í átt að betra lífi og hefur hann aldrei verið hamingjusamari. 

Vellystingar í ferðalögum frægra Íslendinga

Ríkmannleg frí þar sem allt er til alls á vel við þegar skærustu stjörnur Íslands fara erlendis. Hvítar strendur, einkasigling og merkjavörur eru oftar en ekki í hávegum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×