Innlent

Fimm handteknir grunaðir um íkveikjur á Akureyri

Jón Þór Stefánsson skrifar
Fimm hafa verið handteknir vegna eldsvoðanna sem áttu sér stað í morgun og í nótt á Akureyri
Fimm hafa verið handteknir vegna eldsvoðanna sem áttu sér stað í morgun og í nótt á Akureyri Vísir/Vilhelm

Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur handtekið fimm einstaklinga sem eru grunaðir um íkveikjur á Akureyri. Lögreglan fékk tilkynningar um tvo eldsvoða, annars vegar í nótt og hins vegar í morgun. Báðir eldsvoðarnir voru í Naustahverfi.

Tuttugu mínútur yfir þrjú í nótt fékk lögreglan tilkynningu um eld í bifreiðum í Naustahverfi á Akureyri. Í tilkynningu um málið segir að þegar lögreglu bar að garði hafi verið uppi mikill eldur, sem var byrjaður að breiðast út í næstu bíla.

Slökkvilið réð niðurlögum eldsins en þá voru fjórar bifreiðar meira og minna skemmdar af eldi.

Fram kemur að lögregla hafi hafið rannsókn á eldsupptökum og strax hafi verið ljóst að ekki væri unnt að útiloka að um íkveikju væri að ræða.

Um tíuleytið í morgun barst önnur tilkynning um eld í bifreið í Naustahverfi á Akureyri. Samkvæmt lögreglunni á Norðurlandi eystra benti rannsókn strax til þess að um íkveikju gæti verið að ræða.

Eftir því sem rannsókninni vatt fram styrktist sá grunur og hafa nú fimm aðilar verið handteknir, grunaðir um aðild að málinu, segir í tilkynningunni.

„Rannsókn málsins heldur áfram en er á frumstigi, eins og gefur að skilja. Við sjáum fram á nokkuð umfangsmikla rannsókn og munum ekki geta veitt frekari upplýsingar um framgang hennar fyrr en eftir helgi,“ segir í tilkynningunni en lögreglan hvetur alla þá sem hafa upplýsingar um málið að setja sig í samband við sig.

Veistu meira um málið? Vísir tekur við öllum ábendingum, ljósmyndum og myndskeiðum á ritstjorn@visir.is.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×