Tónlist

Loka­slagurinn við að taka aftur völdin eftir kyn­ferðis­of­beldi

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Þórunn Salka var að senda frá sér tónlistarmyndband við lagið Freedom.
Þórunn Salka var að senda frá sér tónlistarmyndband við lagið Freedom. Arnar Halldórsson/Vísir

Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á tónlistarmyndbandi við lagið Freedom eftir tónlistarkonuna Þórunni Sölku. Lagið fjallar um kynferðisofbeldi sem Þórunn Salka varð fyrir árið 2020 og í tónlistarmyndbandinu klæðist hún svipuðum fatnaði og kvöldið sem atvikið átti sér stað.

„Lagið er brekka sem endar á sigri og því datt mér í hug að myndbandið væri af mér í fjallgöngu. Ég enda svo á toppi fjallsins dansandi og tek þannig völdin og bjarga frelsinu mínu,“ segir Þórunn Salka í samtali við blaðamann.

Hér má sjá tónlistarmyndbandið:

Klippa: Þórunn Salka - Freedom

„Edda Kristín Óttarsdóttir skaut myndbandið og litgreindi það. Heimir Bjarnason klippti það og ég er svo þakklát að hafa fengið að vinna með þeim, þau eru svo ótrúlega flink í því sem þau gera.“

Leið öruggri frá fyrstu sekúndu

Þórunn Salka segist hafa verið smá stressuð að vera fyrir framan myndavélina.

„Ég er vön að vera fyrir aftan hana og skipuleggja tökur og svona í vinnunni en er ekki mikið fyrir framan hana, segir Þórunn og hlær. En það gekk mjög vel og Edda er svo mikið yndi að mér leið öruggri frá fyrstu sekúndu, það var ótrúlega þægilegt og algjör snilld að vinna með þessu fagfólki. Ég er ótrúlega ánægð með útkomuna og er búin að vera svo spennt að sýna hana.“

Bjargar frelsinu sínu

Hugmyndin að myndbandinu kom til Þórunnar Sölku á meðan að lagið var enn í vinnslu.

„Ég fór að sjá þetta svo mikið fyrir mér, því lagið er brekka sem endar á sigri, að fara í fjallgöngu sem er auðvitað brekka, tekur á og er erfið. Textinn í laginu endar á sigri og þá var pælingin sú að í lok myndbandsins myndi ég enda á toppi fjallsins dansandi og þannig taka völd af atvikinu og bjarga frelsinu mínu.

Ég viljandi vildi ekki hafa þetta neitt kóreógrafað og ég er alls enginn dansari,“ segir Þórunn Salka hlæjandi og bætir við: „Þetta var meira bara tilfinningalegt frelsi og útrás.“

Þórunn Salka endurheimtir frelsið sitt með Freedom og blái augnblýanturinn spilar þar hlutverk.Ruth Tómasdóttir

Valdeflandi kúrekastígvél

Fataval Þórunnar Sölku fyrir myndbandið spilar gríðarlega stórt hlutverk í heildarmyndinni.

„Ég vildi vera í svipuðum fatnaði og ég klæddist kvöldið sem Freedom fjallar um af því það hefur alltaf verið erfið áminning um atvikið.“

Þórunn Salka ræddi við blaðamann í sumar meðal annars um þetta. Kvöldið sem atvikið átti sér stað var hún í kúrekastígvélum og með bláan augnblýant.

„Í gegnum vinnuna og tímann hef ég aftur getað verið í kúrekastígvélum og með bláan augnblýant, sem var eitthvað sem mér fannst rosalega erfið tilhugsun áður. Þannig að það var svona lokaslagurinn við að taka aftur völdin. 

Það var mjög valdeflandi að vera í þessu og ég ætla ekki að leyfa neinum að taka eitthvað frá mér sem mér finnst fallegt, eins og í þessu tilfelli kúrekastígvél og blár augnblýantur.

Þetta hefur mikla þýðingu fyrir mér. Mér fannst þetta loka þessu konsepti og þessum sigri í rauninni, að leyfa gerandanum ekki að sigra og ekki taka neitt frá manni sem manni finnst fallegt. Þannig að það var í rauninni pælingin,“ segir Þórunn Salka að lokum.

Hér má hlusta á Þórunni Sölku á streymisveitunni Spotify. Hér má sjá tónlistarmyndbandið á Youtube.  


Tengdar fréttir

„Langar að minna þol­endur á að þetta er aldrei ykkur að kenna“

„Í rauninni er boðskapurinn með þessu lagi að það skiptir engu máli hverju þú klæðist, hvernig þú hagar þér eða hvað þú ert að gera. Þetta er aldrei þér að kenna,“ segir söngkonan Þórunn Salka. Hún var að senda frá sér sitt fyrsta lag, Freedom, þar sem hún tjáir sig um kynferðisofbeldi sem hún varð fyrir í Los Angeles fyrir þremur árum. Blaðamaður hitti hana í kaffi og fékk að heyra nánar frá laginu og lífinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×