Innlent

Höfða mál á hendur ríkinu vegna út­burðarins

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Þuríður Harpa segir mál Jakubs Polkowski fordæmisgefandi.
Þuríður Harpa segir mál Jakubs Polkowski fordæmisgefandi. vísir

ÖBÍ réttindasamtök hafa tekið ákvörðun um að stefna ríkinu vegna útburðar Jakubs Polkowski, 23 ára gamals öryrkja í Reykjanesbæ. Formaður ÖBÍ segir málið fordæmisgefandi og vonast til þess að það verði víti til varnaðar fyrir sýslumenn.

Greint var frá málinu í lok júní. Kom þá fram að hús Jakubs hafi verið metið á 57 milljónir en selt á þrjár milljónir á nauðungaruppboði vegna vanskila á húsnæðisgjöldum. Jakub sagðist þá ekki hafa vitað að hann stæði í skuld vegna þeirra gjalda. Svo fór að útburðinum var frestað um rúman mánuð en Jakub og fjölskylda fluttu í félagslegt húsnæði á vegum sveitarfélagsins í byrjun þessa mánaðar.

Ákvörðun um málshöfðun var tekin á stjórnarfundi ÖBÍ í gær, að sögn Þuríðar Hörpu Sigurðardóttur, formanns ÖBÍ en RÚV greindi fyrst frá. Málið er höfðað á hendur íslenska ríkinu og kaupanda hússins. Ekki tókst að fá kaupanda til að hætta við kaupin en formaður bæjarráðs sagði í samtali fréttastofu að einstaklingar hafi boðið fram nokkrar milljónir til þess að koma húsinu aftur í hendur fjölskyldunnar.

Stefna í vinnslu

„Fólki var ofboðið hvernig þetta mál fór. Þetta er mikið réttlætismál og fordæmisgefandi fyrir stóran hóp. Það er talsvert stór stjórn sem tók ákvörðunina og þetta var einróma álit stjórnar,“ segir Þuríður Harpa í samtali við Vísi.

„Sýslumaður á að gæta hagsmuna einstaklings, sem í þessu tilfelli er fatlaður. Hann viðist ekki hafa notið réttinda og það er enginn annar sem getur stigið inn í. Á þessum tímapunkti var það sýslumanns að sjá til þess að einstaklingurinn hafi viðeigandi úrræði og að einhver gæti hagsmuna hans.“

Ákvörðunin var tekin eftir að samráð var haft við lögmenn réttindasamtakanna.

„Nú sjáum við bara hvað verður. Stefnan er í vinnslu og þegar hún er komin liggur þetta allt ljósara fyrir. Við vonumst auðvitað til þess að vinna þetta mál. Eða að minnsta kosti að þetta verði víti til varnaðar og að það gerist eitthvað hjá ríkinu sem verður til þess að gætt sé að hagsmunum allra,“ segir Þuríður Harpa að lokum. 


Tengdar fréttir

Útgerðarmaðurinn hyggst ekki draga kaupin til baka

Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar segist óska þess að sýslumaður hefði upplýst sig um stöðu ungs manns sem borinn verður út úr skuldlausi húsi sínu á föstudag. Útgerðarmaður sem keypti húsið á þrjár milljónir á nauðungaruppboði ætlar ekki að endurskoða kaupin.

Borinn út eftir að sýslumaður seldi einbýlið á þrjár milljónir

Hús ungs öryrkja í Keflavík, sem metið er á 57 milljónir króna, var selt á nauðungaruppboði sýslumanns á þrjár milljónir vegna vanskila á húsnæðisgjöldum. Hann er nú allslaus og bíður útburðar á föstudag. Vinnubrögð sýslumanns, sem segist aðeins vera að framfylgja lögum, eru harðlega gagnrýnd í ljósi þess að maðurinn virðist ófær um að gæta hagsmuna sinna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×