Frambjóðandi til forseta Ekvador skotinn til bana Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. ágúst 2023 06:23 Fernando Villavicencio með fána á framboðsfundi í skóla nokkrum mínútum áður en hann var skotinn til bana í Quito í nótt. AP Frambjóðandi í komandi forsetakosningum í Suður-Ameríkuríkinu Ekvador var skotinn til bana á kosningafundi í höfuðborginni Quito í gær.
Vitni segja hinn 59 ára gamla Fernando Villavicencio hafa verið skotinn þrisvar. Villavicencio hefur í kosningabaráttu sinni einblínt á spillingu og að stöðva glæpagengi. Hann hefur verið einn fárra forsetaframbjóðenda til að benda á að embættismenn í Ekvador séu tengdir við skipulögð glæpasamtök í landinu. Ekvador hefur í seinni tíð talist vera nokkuð öruggt land en glæpum hefur fjölgað nokkuð verulega síðustu ár. Upprisa fíkniefnagengja hefur verið talin helsta ástæðan og verið eitt aðalumræðuefnið í kosningabaráttunni. Samkvæmt upplýsingum úr kosningateymi Villavicencio var hann að stíga inn í bíl þegar karlmaður birtist óvænt og skaut hann í höfuðið. Árásarmaðurinn var skotinn af öryggisvörðum og lést af sárum sínum. Níu til viðbótar slösuðust. Sex eru í haldi lögreglu vegna morðsins. Villavicencio var giftur fimm barna faðir, fyrrverandi blaðamaður sem fjallaði um spillingu á ferli sínum. Hann greindi frá því í síðustu viku að honum og kosningateymi hans hefði verið hótað af gengi sem tengdist fíkniefnaviðskiptum. Fyrsta umferð forsetakosninganna á að fara fram þann 20. ágúst. Frétt BBC.
Ekvador Andlát Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Skafið og saltað Veður Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Fleiri fréttir Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Sjá meira