Innlent

Kuba borinn út og ÖBÍ undir­býr skaða­bóta­mál

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Jakubs Polkowski, jafnan kallaður Kuba, á heimili sínu í Keflavík.
Jakubs Polkowski, jafnan kallaður Kuba, á heimili sínu í Keflavík. vísir

Jakub Polkowski, 23 ára gamall öryrki í Reykjanesbæ, var í síðustu viku borinn út úr húsi sínu ásamt fjölskyldu af sýslumanninum á Suðurnesjum. Jakub og fjölskylda hans fluttu í félagslegt húsnæði á vegum sveitarfélagsins. Lögmaður Öryrkjabandalags Íslands kannar nú skaðabótarétt fjölskyldunnar vegna vinnubragða sýslumanns sem seldi húsið á nauðungaruppboði á þrjár milljónir króna. 

Greint var frá málinu í lok júní. Kom þá fram að húsið hafi verið metið á 57 milljónir en selt á þrjár milljónir á nauðungaruppboði vegna vanskila á húsnæðisgjöldum. Jakub sagðist þá ekki hafa vitað að hann stæði í skuld vegna þeirra gjalda. Svo fór að útburðinum var frestað um rúman mánuð.

Friðjón Einarsson formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar staðfestir í samtali við fréttastofu að útburðurinn hafi gengið í gegn 3. ágúst síðastliðinn. 

Friðjón Einarsson.Aðsend

„Þá fóru þau í íbúð á okkar vegum. Þegar útburðinn átti að fara fram höfðu þau sofið eina nótt hjá okkur. Þetta er afgreitt. Við höfum verið í miklum samskiptum við fjölskylduna en það gekk ekkert til baka með húsið,“ segir Friðjón. 

Gerðar voru tilraunir til að kaupa húsið af kaupandanum, útgerðarmanni á Suðurnesjum, en án árangurs.

„Eigandinn kaupir húsið og er í fullum rétti. Nú er bara spurningin hvort sýslumaður sé bótaskyldur,“ bætir Friðjón við. Höfðu nokkrir einstaklingar samband við Friðjón og buðu fram nokkrar milljónir til þess að koma húsinu aftur í hendur fjölskyldunnar.

Sjá einnig: Nokkrir boðið fram milljónir til að færa fjöl­skyldunni húsið aftur

Algjör óhæfa

Þuríður Harpa Sigurðardóttir formaður ÖBÍ réttindasamtaka segir að mál Jakubs verði tekið fyir hjá stjórn bandalagsins í næstu viku.

„Við erum að skoða þetta með okkar lögmönnum. Við erum líka að óska eftir samtali við dómsmáláðherra vegna þess að ef þetta er það sem lögin bjóða upp á þá verður að lagfæra það. Það verður að koma í veg fyrir að svona geti gerst,“ segir Þuríður Harpa í samtali við fréttastofu.

Þuríður Harpa Sigurðardóttir.Vísir/Vilhelm

„Þetta er auðvitað algjör óhæfa. Það gengur ekki að þeir sem geta ekki borið hönd yfir höfuð sér séu ekki varðir af lögunum gegn svona löguðu. Þetta er misneyting á valdi.“

Ásdís Ármannsdóttir, sýslumaður á Suðurnesjum, ræddi útburðinn í samtali við Vísi eftir að nauðungarsalan var gerð. Þá sagði hún málið ekki jafn einfalt og það hafi virst. Ekkert annað hafi verið í stöðunni en að framfylgja lögum.


Tengdar fréttir

Útgerðarmaðurinn hyggst ekki draga kaupin til baka

Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar segist óska þess að sýslumaður hefði upplýst sig um stöðu ungs manns sem borinn verður út úr skuldlausi húsi sínu á föstudag. Útgerðarmaður sem keypti húsið á þrjár milljónir á nauðungaruppboði ætlar ekki að endurskoða kaupin.

„Mér er bara svo mis­boðið“

Þingmenn og fleiri eru afar ósátt með að bera eigi ungan öryrkja í Keflavík úr einbýlishúsi sínu næstkomandi föstudag vegna vanskila á húsnæðisgjöldum. Sýslumaðurinn á Suðurnesjum er harðlega gagnrýndur fyrir sinn hlut í málinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×