Handbolti

Úlfur til liðs við Hauka

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Úlfur Gunnar mun leika í rauðu næstu þrjú árin.
Úlfur Gunnar mun leika í rauðu næstu þrjú árin. Haukar

Úlfur Gunnar Kjartansson hefur samið við Hauka, silfurlið Olís-deildar karla í handbolta.

Handknattleiksdeild Hauka greinir frá en þar segir að Úlfur Gunnar hafi skrifað undir þriggja ára samning. Hann kemur frá ÍR sem endaði í næstneðsta sæti Olís-deildarinnar og leikur því í Grill66-deildinni á komandi leiktíð.

Gunnur Úlfar er 25 ára gamall línumaður sem hefur leikið með ÍR nær allan sinn feril. Þá hefur hann leikið með öllum yngri landsliðum Íslands.

Haukar fóru alla leið í úrslit Olís-deildarinnar á síðustu leiktíð en biðu þar lægri hlut gegn ÍBV. Talið er að Gunnar Úlfur eigi að leysa Heimi Óla Heimisson af hólmi en sá hefur endanlega lagt skóna upp í hillu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×