Snorri Steinn í fullt starf og skrifaði undir þriggja ára samning Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. júní 2023 13:00 Snorri Steinn Guðjónsson skrifaði undir þriggja ára samning við HSÍ. vísir/vilhelm Vísir var með beina útsendingu og textalýsingu frá blaðamannafundi HSÍ þar sem Snorri Steinn Guðjónsson var kynntur sem næsti þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta. Fundurinn hófst klukkan 13:00. Útsendingu frá honum má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Þar má einnig nálgast beina textalýsingu frá honum. Snorri skrifaði undir þriggja ára samning við HSÍ og verður í fullu starfi hjá sambandinu. Honum til aðstoðar verður Arnór Atlason. Fyrsta stóra verkefni Snorra sem landsliðsþjálfari verður Evrópumótið í Þýskalandi í janúar. Þar spilar Ísland í riðli með Serbíu, Svartfjallalandi og Ungverjalandi, og komast tvö lið áfram í milliriðlakeppnina. Góður árangur á EM gæti skilað Íslandi í umspil um sæti á Ólympíuleikunum sem fram fara í París sumarið 2024. Bæði Snorri og Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, sögðu að markmið íslenska liðsins væri að komast þangað.
Fundurinn hófst klukkan 13:00. Útsendingu frá honum má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Þar má einnig nálgast beina textalýsingu frá honum. Snorri skrifaði undir þriggja ára samning við HSÍ og verður í fullu starfi hjá sambandinu. Honum til aðstoðar verður Arnór Atlason. Fyrsta stóra verkefni Snorra sem landsliðsþjálfari verður Evrópumótið í Þýskalandi í janúar. Þar spilar Ísland í riðli með Serbíu, Svartfjallalandi og Ungverjalandi, og komast tvö lið áfram í milliriðlakeppnina. Góður árangur á EM gæti skilað Íslandi í umspil um sæti á Ólympíuleikunum sem fram fara í París sumarið 2024. Bæði Snorri og Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, sögðu að markmið íslenska liðsins væri að komast þangað.
Landslið karla í handbolta HSÍ Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira