Innlent

Hækka leiguna á stúdenta­görðum

Atli Ísleifsson skrifar
Nýju stúdentagarðarnir á gömlu Hótel Sögu fengu nafnið Saga en Félagsstofnun stúdenta keypti rúmlega fjórðungshlut í húsnæðinu á móti ríkinu í lok árs 2021.
Nýju stúdentagarðarnir á gömlu Hótel Sögu fengu nafnið Saga en Félagsstofnun stúdenta keypti rúmlega fjórðungshlut í húsnæðinu á móti ríkinu í lok árs 2021. Vísir/Egill

Leigugrunnur íbúða og herbergja á Stúdentagörðum Félagsstofnunar stúdenta mun hækka um tvö prósent frá og með 1. september næstkomandi. Hækkunin er sögð vera til komin vegna aukins rekstrarkostnaðar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Félagsstofnun stúdenta. Þar segir að leigugrunnur hafi ekki verið hækkaður síðastliðin fimm ár, að undanskildum innbyrðis leiðréttingum á leiguverði árið 2019.

„Hækkunin nú er tilkomin vegna aukins rekstrarkostnaðar. Auk þess hefur rétt framlag til viðhalds ekki náðst úr rekstrinum undanfarin ár. Haldið hefur verið aftur af hækkunum síðastliðin ár en mikilvægt er að leiðrétta reksturinn og er þetta skref í átt til þess,“ segir í tilkynningunni.

Félagsstofnun stúdenta (FS) er óhagnaðardrifin sjálfseignarstofnun með sjálfstæða fjárhagsábyrgð. FS rekur Stúdentagarða, Stúdentakjallarann, Bóksölu stúdenta, Hámu veitingasölu og Leikskóla stúdenta (Sólgarð og Mánagarð).



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×