Handbolti

Mag­deburg í undan­úr­slit Meistara­deildar Evrópu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Kay Smits var magnaður í kvöld.
Kay Smits var magnaður í kvöld. Ronny Hartmann/Getty Images

Íslendingaliðið Magdeburg er komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í handbolta eftir tveggja marka sigur á Wisla Plock í kvöld, lokatölur 30-28.

Fyrri leik liðanna lauk með jafntefli, 22-22, og því var ljóst að sigurvegari kvöldsins myndi komast áfram í undanúrslitin sem fram fara í Köln í Þýskalandi líkt og úrslitaleikurinn sjálfur.

Leikur kvöldsins var hnífjafn framan af og var staðan jöfn 13-13 í hálfleik. Það var í raun ekki fyrr en um miðbik síðari hálfleiks sem heimamenn náðu loks tveggja marka forystu og hana létu þeir ekki af hendi. Lokatölur 30-28 og Magdeburg komið áfram.

Kay Smits fór hamförum í liði Magdeburg í kvöld en hann skoraði 14 mörk á meðan Michael Damgaard skoraði átta mörk. Bæði Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon voru fjarverandi vegna meiðsla í kvöld.

Síðar í kvöld kemur í ljós hvort París Saint-Germain eða Kiel komist áfram í undanúrslit. Á morgun tekur Kielce á móti Bjarka Má Elíssyni og félögum í Veszprém á meðan Barcelona mætir GOG.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×