Innlent

Ólafur Ragnar alltaf haft meiri áhuga á framtíðinni en fortíðinni

Heimir Már Pétursson skrifar
Ólafur Ragnar Grímsson verður 80 ára sunnudaginn 14. maí. Hann ber árin vel og er enn á fullu í alþjóðlegu starfi í tengslum við Hringborð norðurslóða og hefur að undanförnu gefið út tvær bækur.
Ólafur Ragnar Grímsson verður 80 ára sunnudaginn 14. maí. Hann ber árin vel og er enn á fullu í alþjóðlegu starfi í tengslum við Hringborð norðurslóða og hefur að undanförnu gefið út tvær bækur. Stöð 2/Arnar

Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti Íslands verður áttræður á morgun. Hann hefur víða komið við á farsælum og löngum ferli og er enn að. Segist alltaf hafa haft meiri áhuga á því sem gerist á morgun en því sem gerðist í gær.

Flestir sem ná áttræðisaldri boða til mikillar veislu með fjölskyldu og vinum með brauðtertum, rjómatertum og ég veit ekki hverju. En ekki Ólafur Ragnar Grímsson. Hann boðar til alþjóðlegs málþings í Hörpu.

Þessi fyrrverandi háskólaprófessor, formaður Alþýðubandalagsins, forystumaður í Alþjóðaþingmannasamtökunum, fjármálaráðherra, forseti Íslands í tuttugu ár og stofnandi Hringborðs norðurslóða fagnar áfanganum á sunnudag.

„Það er nú margt sem ber hæst. Allt frá æskuárum á Þingeyri og Ísafirði til þessara ferðalaga vítt og breitt um veröldina. Þeirrar gæfu að fá að vinna í þágu bæði íslenskrar þjóðar en líka með fjölda þjóðarleiðtoga frá nánast öllum heimsálfum,“ segir Ólafur Ragnar.

Hann geti því ekki annað en verið þakklátur og vonandi hafi hann orðið að gagni.

Á seinni árum hefur Ólafur Ragnar rætt meira um rætur sínar fyrir vestan, æskuárin á Þingeyri og Ísafirði. Þarna rifjar hann upp að foreldrar fréttamannsins leigðu kjallaraíbúð af föður hans í Túngötunni á Ísafirði fyrstu hjúskapar ár þeirra.Stöð 2/Arnar

„Vegna þess að ég fékk það í vöggugjöf á Ísafirði og Þingeyri að maður yrði að vera að gagni í lífinu. Ég hef reynt að gera það og er nú reyndar enn að. Þannig að mér finnst hún pínulítið fáránleg þessi tala sem kemur upp úr þjóðskránni,“ segir forsetinn fyrrverandi.

Á málþinginu verða fjórar pallborðsumræður með þátttakendum héðan og víðs vegar að úr heiminum til að svara spurningunni um vegvísa framtíðarinnar sem er yfirskrift málþingsins.

„Þetta er ekki málþing um mína ævi eða fortíðina. Þetta er málþing um framtíðina. Bæði friðarfrumkvæði leiðtoga, orkubyltinguna, loftslagsmál og Norðurslóðir,“ segir Ólafur Ragnar sem stofnaði Hringborð norðurslóðaásamt nokkrum öðrum undir lok forsetaferils síns sem nú er orðið að alþjóðlegum stórviðburði í október ár hvert í Hörpu.

Forsetinn fyrrverandi er maður reglufestunnar og byrjar hvern dag á löngum göngutúrum. Undanfarin áratug hefur hann staðið fyrir Hringborði norðurslóða í Hörpu sem orðinn er einn helsti vettvangur norðurslóðamálefna í heiminum.Stöð 2/Arnar

Í lok málþingsins munu fjórar íslenskra forystukonur; Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra, Lilja Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra og Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar ræða við Ólaf Þ. Harðarson prófessor emeritus um þjóðmál framtíðarinnar.

Dagskrá afmælis málþings Ólafs Ragnars.Vísir

„Ég er mjög ánægður með það. Þegar ég hóf þátttöku í stjórnmálum hafði engum dottið í hug að láta konur fjalla um þjóðmál í framtíðinni. Nú fáð þær fjórar, þessar ungu glæsilegu forystukonur, sviðið í lokin á þessu málþingi. Málþingið er opið öllum sem hafa áhuga á að hlýða á þessar umræður,“ segir Ólafur Ragnar.

Gífurlegar þjóðfélagsbreytingar hafi átt sér stað á hans æviskeiði og Ísland þróast á þeim tíma frá því að vera eitt fáttækasta ríki heims, einangrað og sambandslítið við umheiminn í eitt þróaðasta ríki heims. Það sýni að allir geti breytt heiminum til batnaðar hafi fólk hugmyndir, vilja og getu til að gera það. Hann hugsi hins vegar ekki um sína eign arfleið á þessum tímamótum.

„Ég hef alltaf haft meiri áhuga á því hvað gerist á morgun heldur en hvað ég skildi eftir mig í gær,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson áttræður.


Tengdar fréttir

Forsetinn vísar Icesave lögum til þjóðarinnar

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands hefur ákveðið að staðfesta ekki lög um ríkisábyrgð á Icesave skuldbindingar Íslands. Þetta kom fram á blaðamannafundi forsetans á Bessastöðum klukkan ellefu. Forsetinn hefur haft lögin til staðfestingar í fimm sólahringa.

Ný al­þjóð­leg hug­veita um frið og vel­megun stað­sett í Reykja­vík

Tilkynnt var á Hringborði norðurslóða í dag að ný alþjóðleg hugveita um frið og velmegun á norðurslóðum verði með höfuðstöðvar sínar í Reykjavík. Forstöðumaður hennar segir að þróun og fjárfestingar eigi ætíð að fara fram í samvinnu við frumbyggja og taka mið af þeirra þörfum og menningu. Dorrit Moussaieff ætlar að sofa í tjaldi við Hörpu í nótt til að vekja athygli á málefnum norðurslóða.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×