Körfubolti

Olnbogarnir sem hafa komið Drungilas í kast við körfuboltalögin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Adomas Drungilas ræðir við Davíð Tómas Tómasson sem hefur oftar en einu sinni komið við sögu þegar Drungilas hefur látið olnbogana tala.
Adomas Drungilas ræðir við Davíð Tómas Tómasson sem hefur oftar en einu sinni komið við sögu þegar Drungilas hefur látið olnbogana tala. vísir/bára

Allra augu í Síkinu í kvöld verða eflaust á Adomas Drungilas þegar Tindastóll tekur á móti Val í öðrum leik liðanna í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta.

Drungilas hefur verið mikið milli tannanna á fólki eftir að hann sló til Kristófers Acox í fyrsta leik Vals og Tindastóls á laugardaginn. 

Dómarar leiksins skoðuðu atvikið á myndbandi og gáfu síðan Drungilas óíþróttamannslega villu. Dómaranefnd KKÍ vísaði atvikinu hins vegar til aga- og úrskurðarnefndar sem ákvað að aðhafast ekkert í málinu. Drungilas slapp því við bann og getur tekið þátt í leiknum í kvöld.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Drungilas kemst í kast við körfuboltalögin þau tvö tímabil sem hann hefur leikið hér á landi. Samtals hefur hann verið dæmdur í sjö leikja bann.

Í mars 2021 var Drungilas dæmdur í eins leiks bann fyrir að slá til Breka Gylfasonar, leikmanns Hauka í leik gegn Þór Þ. í 14. umferð Subway-deildarinnar.

Seinna í sama mánuði fékk Drungilas tveggja leikja bann fyrir að gefa Stjörnumanninum Mirza Saralilja olnbogaskot. 

Klippa: Olnbogaskot Drungilas

Tveimur mánuðum síðar var Drungilas úrskurðaður í þriggja leikja bann fyrir að gefa Guy Edi, leikmanni Þórs frá Akureyri, olnbogaskot í Þórsslag í Þorlákshöfn. Fyrir vikið missti hann af fyrstu þremur leikjum Þórs í úrslitakeppninni. Drungilas varð Íslandsmeistari með Þór vorið 2021 og var valinn besti leikmaður lokaúrslitanna. 

Drungilas sneri aftur til Íslands í fyrra og gekk í raðir Tindastóls. Og í 1. umferð Subway-deildarinnar á þessu tímabili mætti hann Keflavík og Dominykas Milka en þeir elduðu grátt silfur í úrslitunum 2021.

Í leik Keflavíkur og Tindastóls í byrjun október var Drungilas hent út úr húsi fyrir að gefa Milka olnbogaskot. Í kjölfarið var hann dæmdur í eins leiks bann.

Leikur Tindastóls og Vals hefst klukkan 19:15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Upphitun Subway Körfuboltakvölds hefst klukkan 18:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×