Lífið

Róbert og Ksenia orðin sex barna foreldrar

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Hjónin eiga nú samtals sex börn.
Hjónin eiga nú samtals sex börn. Instagram

Ró­bert Wessman fjár­fest­ir og for­stjóri Alvotech og Ksenia Shak­hmanova eiginkona hans eignuðust dóttur á dögunum. Dóttirin er annað barn þeirra saman, en fyrir eiga þau soninn Robert Ace fjögurra ára.

„Stúlka í þetta sinn,“skrifar Róbert við mynd af nýbökuðu foreldrunum með dótturina Vivien Roberta.

„Fallega dóttir okkar Vivien Roberta Wessman fæddist að morgni 3.maí 2023. Ég og Ksenia erum svo óendanlega þakklát að fá hana inn í líf okkar. Hún er birtingarmynd af ást okkar til hvors annars, og hlökkum við til að deila lífinu og hamingjunni með henni.“

Fyrir eiga þau tvö börn hvor úr fyrri samböndum.

Hjónin gengu í það heilaga árið 2021 við fallega athöfn í garðinum við heimili þeirra í Frakkalandi þar sem um hundrað gestir mættu frá öllum heimshornum og fögnuðu með þeim. 

Óhætt er að segja að öllu hafi verið tjaldað til en þau fengu meðal annars tónlistarmanninn Enrique Iglesias til að syngja fyrir veislugesti.

Þá klæddist Róbert klæddist fötum frá Dolce & Gabbana og kjóll Kseniu frá Zuhair Murad. 


Tengdar fréttir

Róbert Wess­man og Ksenia eiga von á barni

Róbert Wessman, stofnandi Alvotech, og eiginkona hans Ksenia Shakhmanovu eiga von á barni á nýju ári. Róbert tilkynnti gleðitíðindin á Instagram síðu sinni.

Svona var brúðkaup Róberts og Kseniu

Brúðkaup Róberts Wessman og Kseniu Shakhmanov í sumar var einstakur viðburður. Eins og sjá má í stuttu brúðkaupsmyndbandi sem Róbert birti á samfélagsmiðlum í gær, var brúðkaupið þeirra eins og í rómantískri Hollywood mynd.

Róbert Wessman stækkar vínveldið

Róbert Wessman hefur stækkað vínveldi sitt en hann hefur gengið frá kaupum á 45 hektara vínekru í Frakklandi. Fyrir á Róbert vínekru í Périgord Pourpre og rekur hann vínframleiðsluna Maison Wessman. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×