Lífið

Stjörnulífið: Gæsun, GusGus og gleði

Íris Hauksdóttir og Svava Marín Óskarsdóttir skrifa
Stjörnulífið er vikulegur fastur liður á Vísi.
Stjörnulífið er vikulegur fastur liður á Vísi. SAMSETT

Reykjavíkurborg iðaði af menningu og lífi um helgina í tilefni af HönnunarMars og áhrifavaldar landsins nutu sín í botn á hinum ýmsu viðburðum. Mikið var um árshátíðir og veisluhöld og hljómsveitin GusGus hélt ferna tónleika á Nasa, þar sem stiginn var trylltur dans. Margir fylgdust svo grant með krýningu Karls III Bretakonungs og klæddu sig upp í tilefni af því. 

Íslendingar halda áfram að vera duglegir að heimsækja sólina. Söngkonan Jóhanna Guðrún naut sín í fjölskyldufríi á Tenerife og athafnakonan Tanja Ýr átti góðar stundir á ströndinni í Miami. 

Söngkonan og GusGus meðlimurinn Margrét Rán fagnaði 31 árs afmæli sínu í gær með óvæntri barnasturtu og kom fram á fjórum tónleikum um helgina á Nasa. 

Ungstirnið og tónlistarkonan Gugusar tróð upp á tískuviðburði Hildar Yeoman á föstudaginn. 

Fanney Ingvars gæsaði vinkonu sína Svövu Guðrúnu með fleiri ofurskvísum. Dansarinn, fasteignasalinn og áhrifavaldurinn Tara Sif var meðal annars með þeim. 

Fatahönnuðurinn Andrea skartaði sínu fínasta pússi í tilefni af krýningu nýs konungs í Bretlandi. 

Áhrifavaldurinn Helgi Ómarsson þræddi miðborgina á HönnunarMars.

Diljá, Eurovision stjarna okkar Íslendinga, nýtur sín í botn í Liverpool og segist aldrei hafa verið betri. Hún stígur á svið eftir þrjá daga og spennan magnast.

Fjöllistakonan Margrét Maack stefnir á Evróputúr í haust með Gógó starr og Wilfredo.

Álfrún Pálsdóttir, kynningarstjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands, fagnaði á opnunarhófi HönnunarMars í Hörpu.

Tónlistarkonan og Of Monsters And Men meðlimurinn Nanna gaf út lag á föstudagskvöld en lagið er hluti af sóló verkefni hennar.

Leikkonan Saga Garðarsdóttir og hennar betri helmingur, Snorri Helgason, skelltu sér til Barcelona ásamt fríðu föruneyti á tónleika með Bruce Springsteen. 

Skemmtikrafturinn og grínistinn Auðunn Blöndal fagnaði tveggja ára afmæli sonar síns, sem hann segir vera þann fyndnasta sem hann hafi kynnst.

Tónlistarmaðurinn Patrik gaf út sína fyrstu EP plötu á föstudag og sendi í leiðinni frá sér tónlistarmyndband við lagið Allar stelpurnar.

Hjónin Viktoría Hermannsdóttir og Sóli Hólm skemmtu sér vel um helgina.

Leik -og söngkonan Þuríður Blær var litrík við höfnina í hönnun Helgu Björnsson.

Hlaupakonan Mari Järsk deildi mynd af sér og Nirði, kærasta sínum, og segir hann vera sálufélaga sinn.

Fótboltakappinn og athafnamaðurinn Rúrik Gíslason tók morgunhlaupið í sólinni um helgina.

Áhrifavaldurinn og raunveruleikastjarnan Sunneva Einarsdóttir skellti sér í Sky Lagoon og beið spennt eftir búbblunum. 

Fasteignasalinn Hrefna Dan fagnar því a vera laus við sílíkonið úr brjóstunum. 

Ráðherrarnir Áslaug Arna og Þórdís Kolbrún fór á sjálfstæðiskvenna trúnó um helgina.

Parið Manuela Ósk og Eiður Birgisson fermdu um helgina og eru nú búin að ferma helming barna sinna.

Flugfreyjan Andrea Sigurðardóttir var í skýjunum að vera laus við skýin í Los Angeles þar sem hún er í heimsókn hjá þjálfaranum Söndru Björgu, stjúpsystur sinni. 

Fyrirsætan Tinna Bergsdóttir fagnaði afmæli ástarinnar sinnar í London, þar sem þau eru búsett.

Gummi Kíró klæddi sig upp í Stokkhólmi, þar sem hann var um helgina ásamt elstu dóttur sinni Lilju Marín og kærustu sinni Línu Birgittu. 

Förðunarfræðingurinn Kolbrún Anna Vignisdóttir fagnaði því að þrjú ár væru liðin frá því að hún bauð kærastanum sínum fyrst á stefnumót.

 Tónlistarkonan Svala Kali kom fram á árshátíð í Hörpunni. 

Rapparinn Emmsjé Gauti telur niður í 20 ára afmælistónleika sína. 

Tónlistarmaðurinn og hönnuðurinn Logi Pedro birti skemmtilega myndaseríu.

Páll Óskar átti viðburðaríka helgi, þar sem hann kom meðal annars fram fyrir þúsundum ungmenna á ballinu Samfés í Laugardalshöll. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×