Lífið samstarf

Notar þú bara sólar­vörn á sólar­dögum?

Cu2
Á síðustu árum hefur orðið mikil vitundarvakning hvað varðar mikilvægi þess að nota sólarvörn daglega. Hello Sunday vörurnar hafa slegið í gegn eftir að þær komu á markað árið 2021.
Á síðustu árum hefur orðið mikil vitundarvakning hvað varðar mikilvægi þess að nota sólarvörn daglega. Hello Sunday vörurnar hafa slegið í gegn eftir að þær komu á markað árið 2021.

Flest vitum við að það besta sem þú getur gert fyrir húðina þína er að vernda hana fyrir útfjólubláum geislum sólarinnar snemma á lífsleiðinni.

Á síðustu árum hefur orðið mikil vitundarvakning hvað varðar mikilvægi þess að nota sólarvörn daglega, en rannsóknir sýna að sólarskemmdir eru ein helsta orsök ótímabærrar öldrunar húðarinnar og húðkrabbameins.

Hello Sunday, sem markaðssett var með hvelli árið 2021, hefur eitt einfalt markmið ... að gjörbylta því hvernig við hugsum um sólarvörn með því að hvetja alla til SPF notkunar, alla daga, allt árið um kring.

Við vitum að UV skemmdir eiga sér stað í daglegu lífi, jafnvel á skýjuðum dögum, yfir vetrarmánuðina og í svalari heimsálfum. Eftir að hafa dvalið í mörg ár í Ástralíu sneri stofnandi Hello Sunday, Amy Ford, aftur til Bretlands með framtíðarsýn um að breyta hugmyndum fólks hvað varðar húðvarnir. Það var mikilvægt fyrir Amy að búa til vöruval sem væri á viðráðanlegu verði, myndi bjóða upp á margþætta vernd og veita einnig húðbætandi áhrif þannig að auðveldara væri fyrir alla að setja SPF inn í sína daglegu húðrútínu.

Með þessi markmið að leiðarljósi þróaði Hello Sunday teymið fjölbreytt úrval formúla sem veita háa vörn gegn UVA og UVB geislum, mengun, útfjólubláum og innrauðum geislum auk þess að innihalda þekkt húðbætandi efni eins og hýalúrónsýru og C-vítamín sem næra og gefa húðinni raka.

Þannig samanstendur Hello Sunday vörulínan af sérstöku úrvali sem inniheldur m.a. húðvarnir í formi serums, farðagrunna, krema, salva og úða til að fara yfir farða. Spurningin er bara hvernig húðvörn passar best inn í þína húðrútínu.

Hvert svo sem valið verður þá getur þú verið örugg/ur um að vera vel varin/n hvort sem það er sól, skýjað, rigning eða snjóstormur. Sólarvörn á að vera staðalbúnaður alla daga!

Nánari upplýsingar um Hello Sunday vörurnar má finna á vef Cu2






Fleiri fréttir

Sjá meira


×