Erlent

Fundu sjö lík við leit að tveimur ung­lingum

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Lýst var eftir stúlkunum í gær en sést hafði til þeirra með McFadden.
Lýst var eftir stúlkunum í gær en sést hafði til þeirra með McFadden. AP/Oklahoma Highway Patrol

Lögreglan í Oklahoma í Bandaríkjunum fann líkamsleifar sjö í afskekktu húsi í gær. Lögreglan var að leita að tveimur unglingsstúlkum en talið er að þær séu meðal hinna látna. Þá er maðurinn sem talinn er hafa rænt þeim, og hefur nokkra kynferðisbrotadóma á bakinu, einnig talinn meðal látinna.

Eddy Rice, fógeti í Okmulgee sýslu, greindi frá því á blaðamannafundi að réttarmeinafræðingur eigi enn eftir að bera kennsl á líkin. Hin fjórtán ára gamla Ivy Webster og hin sextán ára gamla Brittany Brewer eru taldar meðal hinna látnu auk Jesse McFadden, sem talinn er hafa rænt stúlkunum.

„Við erum hætt að leita. Við teljum okkur hafa fundið alla þá sem við leituðum í morgun. Hugur okkar er hjá fjölskyldum og vinu, bekkjarfélögum og öðrum vandamönnum stúlknanna,“ sagði Rice á blaðamannafundi.

Hann vildi ekki gefa frekari upplýsingar um það hvernig fólkið lést.

Líkin sjö fundust í húsi nærri bænum Henryetta. Um sex þúsund búa í bænum, sem er staðsettur um 145 kílómetra austur af Oklahoma borg. 

Lýst hafði verið eftir stúlkunum í gærmorgun en síðdegis tilkynnt að þeirra væri ekki lengur leitað. Ábendingar höfðu borist um að stúlkurnar hefðu sést með McFadden, sem var skráður kynferðisbrotamaður eins og lög segja til um vestanhafs. Samkvæmt sakaskrá McFadden var hann sakfelldur fyrir nauðgun af yfirlögðu ráði árið 2003 og látinn laus í október 2020. 

Þá átti McFadden að mæta fyrir dóm í gær í fyrirtöku vegna meintra kynferðisbrota hans gegn ólögráða einstaklingi og barnaníðsefnis sem fannst í hans fórum. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×