Innlent

Ekki eins­dæmi að svo ungt fólk komi við sögu í al­var­legum saka­málum

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Margrét Helga Erlingsdóttir skrifa
Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild, segist ekki geta staðfest hvort einhver þeirra þriggja sem eru í gæsluvarðhaldi hafi játað sök, líkt og heimildir fréttastofu herma.
Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild, segist ekki geta staðfest hvort einhver þeirra þriggja sem eru í gæsluvarðhaldi hafi játað sök, líkt og heimildir fréttastofu herma. Vísir/Arnar

Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild, segir ekki einsdæmi að jafn ungt fólk hafi komið við sögu við rannsókn alvarlegra sakamála og í manndrápi á bílastæði í Hafnarfirði. Það geri rannsóknir þó flóknari, þar sem gæta þurfi hagsmuna bæði rannsóknarinnar og ungra gerenda.

Fjögur voru handtekin á fimmtudagskvöld og aðfaranótt föstudag í tengslum við manndráp á bílastæði við Fjarðarkaup í Hafnarfirði að kvöldi fimmtudags. 27 ára gamall pólskur karlmaður hlaut bana af og var hann stunginn nokkrum sinnum með hníf.

Þrjú hinna handteknu eru yngri en átján ára en einn sakborninga er orðinn nítján ára. Þrír eru í gæsluvarðhaldi, tveir á Stuðlum og einn á Hólmsheiði en sautján ára stúlku hefur verið sleppt úr haldi. Stúlkan náði myndbandi af árásinni sem, samkvæmt úrskurði Landsréttar um að hún skuli ekki sæta gæsluvarðhaldi, sýnir skýrt að hún hafi ekki tekið þátt í henni.

Skoða enn hlut hvers og eins

 Grímur segist enn ekki vilja greina frá því hve mörg stungusár maðurinn hlaut í árásinni. Þá geti hann ekki staðfest fregnir um að nítján ára sakborningur hafi játað sök, sem fréttastofa hefur eftir heimildum. 

„Við höfum ekki staðfest neitt um það en það er hluti af því sem getur komið fram við yfirheyrslur að einhver játi að minnsta kosti ákveðinn hlut í árás. Við erum enn að með til skoðunar hver er hlutur hvers og eins. Það breytir ekki rannsókninni að öðru leyti en því,“ segir Grímur í samtali við fréttastofu. 

Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði ungmennin í gæsluvarðhald á föstudagskvöld en verjandi stúlkunnar skaut úrskurðinum til Landsréttar á sunnudag.

Í úrskurði Landsréttar, sem fréttastofa hefur undir höndum, lýsir stúlkan málavöxtum þannig að fljótlega eftir að hún og félagar hennar hafi komið út af veitingastað í Hafnarfirði hafi komið til átaka sem hún hafi ekki tekið þátt í og hún verið í fimm til átta metra fjarlægð. Hún segir átökin aðallega hafa verið á milli tveggja.

„Ég deili ekki við héraðsdóm eða Landsrétt um það. Það er hins vegar þannig að okkar hlutverk var bara að varpa ljósi á hvað gerðist: Aðdragandann, árásina og það sem gerðist á eftir. Við töldum að við þyrftum á því að halda að viðkomandi yrði í gæsluvarðhaldi áfram. Landsréttur var ósammála og við unum því.“

Ekki einsdæmi að svo ungt fólk komi við sögu í alvarlegum sakamálum

Grímur segir lögreglu hafa nokkuð skýra mynd af því hver aðdragandi árásarinnar var. Hann vill þó enn ekki greina frá hvernig deilur ungmennanna og hins látna hófust. Þá vildi hann ekki greina frá því hvort ungmennin hafi verið undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna en það sé hluti af því sem er kannað.

Það hefur vakið hjá mörgum ugg hve ung hin handteknu í málinu eru. Grímur segir það þó ekki einsdæmi að svo ungt fólk hafi komið við sögu við rannsókn alvarlegra sakamála. 

„Hins vegar er það þannig að þetta er mjög þungt að því leyti að þarna eru hagsmunir ungra gerenda og svo mjög alvarlegur atburður. Það fer ekki alveg saman hvernig við getum snúið okkur í því. Við viljum auðvitað gera það þannig að við gætum hagsmuna þannig að málið sé rannsakað með miklum gæðum og upplýst eins og mögulegt er. Hins vegar er það þannig þegar mjög ungt fólk er annars vegar þá er ekki viðeigandi að hafa það lengi í gæsluvarðhaldi og alls ekki lengi í einangrun.“

Rannsóknin hafi gengið vel. Hald hafi verið lagt á ýmis gögn, þar á meðal myndefni og svo hafi yfirheyrslur haldið áfram. 

„Allt myndefni er mjög til bóta við svona rannsóknir.“


Tengdar fréttir

Stúlkan segir átökin aðallega hafa verið á milli tveggja

Sautján ára stúlka, sem sleppt var úr haldi í gær eftir úrskurð Landsréttar þess efnis, lýsir atburðarásinni sem leiddi til dauða manns á þrítugsaldri fyrir helgi sem átökum sem hafi aðallega verið á milli tveggja. Doktor í afbrotafræði segir að stjórnvöld verði að ráðast í aðgerðir gegn vopnaburði ungmenna ekki seinna en strax.

Stúlkunni sleppt úr haldi og einn búinn að játa

Sautján ára stúlka sem var handtekin í tengslum við manndráp á tæplega þrítugum karlmanni í Hafnarfirði í síðustu viku hefur verið látin laus úr gæsluvarðhaldi. Verjandi stúlkunnar kærði gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms og Landsréttur felldi hann úr gildi um sexleytið. Nítján ára sakborningur hefur játað að hafa orðið manninum að bana.

„Hún var rangt barn, á röngum stað á röngum tíma“

Verjandi sautján ára stúlku sem var handtekin í tengslum við manndráp á tæplega þrítugum karlmanni í Hafnarfirði í síðustu viku telur óeðlilegt að stúlkan sem sé lykilvitni og upplýsti máli í raun og veru sæti enn gæsluvarðhaldi. Hann hefur kært gæsluvarðhaldsúrskurð yfir stúlkunni til Landsréttar. Stúlkan sé barn sem hafi verið á röngum stað á röngum tíma.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×