Krabbameinsbaráttan varð að dansverki Íris Hauksdóttir skrifar 25. apríl 2023 10:01 Sigga Soffía samdi ljóðabók um veikinda baráttuna og setti sömuleiðis á svið leikverk um reynsluna. Dansarinn, fjöllistakonan og flugeldahönnuðurinn Sigríður Soffía Níelsdóttir, eða Sigga Soffía eins og hún er alltaf kölluð, greindist með krabbamein fyrir tveimur árum. Þá með tvö lítil börn að útskrifast með meistaragráðu, sjálfstætt starfandi og nýflutt í draumahúsið á nesinu.
Sigga Soffía lét þessa óvæntu og óvelkomnu áskorun ekki stöðva sig í fjölbreyttum áformum sínum varðandi framtíðina enda þekkt fyrir mikinn sköpunarkraft. Hún samdi ekki bara ljóðabók um veikinda baráttuna heldur setti sömuleiðis á svið leikverk um reynsluna. Allir geta tengt við tilfinningar „Ég fór í uppskurð, lyfja og geislameðferð. Yngra barnið mitt var fjórtán mánaða þegar ég greindist en sú eldri sjö ára. Þetta tók auðvitað gríðarlega á. Ljóðabókin byrjaði sem nokkurs konar dagbók þar sem ég skrifaði mig frá allskonar tilfinningum og hugsunum. Útkoman reyndist vera þessi bók því það geta allir tengt við tilfinningar. Það að lenda í áfalli og vilja vera góð móðir, lifa lífinu sínu og fá að vera með – en geta það ekki til fulls. Ég vildi fara fallega með umfjöllunarefnið og nálgast það með húmorinn á lofti. Ég sá fyrir mér að bókin yrði handrit að dansverki svo orðin myndu aldrei sjást bara dansinn en svo fór boltinn að rúlla og allir sem lásu hvöttu mig eindregið til að gera eitthvað meira við textann. Ég ætlaði aldrei að gefa þessa bók út. Ég sá fyrir hóp kvenna sem gætu flutt verkið með mér og úr varð þetta verk." Klippa: Til hamingju með að vera mannleg Til hamingju með að vera mannleg, er sviðsverk sem skartar hæfileikaríkustu leikkonum landsins: Nínu Dögg, Svandísi Dóru, Lovísu Ósk, Ellen Margréti, Hallvegu Kristínu, Díönu Rut, ásamt Siggu Soffíu sjálfri. Jónas Sen sér um tónlistina en verkið er sett upp af Níels-dætrum í samvinnu við Þjóðleikhúsið. Styrkt af sviðslistasjóði, listamannalaunum og Reykjavíkurborg. Sigga Soffía hefur sett á svið hin ýmsu verk út um allan heim.Marino Thorlacius Sigga Soffía á langan og glæstan feril að baki en furðu vekur þó starfstitillinn flugeldahönnuður. Hvernig kom það til? „Ferillinn hófst í dansinum. Ég byrjaði snemma og hef sett á svið hin ýmsu verk út um allan heim. Ég hannaði flugeldasýningu fyrst fyrir menningarnótt og sinnti því hlutverki af alúð í þrjú ár. Ég ferðaðist síðar erlendis þar sem ég gerði slíkt hið sama.“ Sigga Soffía sækir innblástur sinn til Japan hvað sjálfbærni og mengunarmál varðar.Marino Thorlacius Á ferðalögum sínum erlendis segist Sigga Soffía einkum hafa dregið innblástur frá Japan hvað sjálfbærni og mengunarmál varðar. „Í Japan er orðið flugeldur: Hanabi en beinþýðing orðsins er Hana: Eldur og Bi: Blóm = Eldblóm. Þarna kviknaði hugmyndin um sýninguna mína: Eldblóm sem var opnunaratriðið á Listahátíðinni í Reykjavík 17. júní 2020. Ég gerði síðan fleiri sýningar, meðal annars í Hallagarðinum þar sem ég sýndi 850 mismunandi blóm að sprengjast út líkt og flugeldar. Í kjölfarið fór ég að rækta og selja lauka sem seldir voru í sérstökum umbúðum svo fólk gæti sett af stað sína eigin flugeldasýningu heiman frá sér.“ Ljóst er að Sigga Soffía hefur ótal járn í eldinum en hún ítrekar að aðeins örfáar sýningar séu til boða af Til hamingju með að vera mannleg og hvetur því áhugasama um að hafa hraðar hendur til að næla sér í miða.
Dans Leikhús Mest lesið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Hugljúft geimævintýri líður fyrir þreytandi þúsaldarhúmor Gagnrýni Hugarafl er staður þar sem karlmenn fella niður grímuna Lífið samstarf „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Lífið Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Lífið Fleiri fréttir Settu tærnar upp í loft og fengu knús „Ekki viss hvort ég sé að skrifa minningargrein eða kveðjubréf“ Sjötugur Haukur Holm kveður fréttamennskuna Raðvændiskaupandi dæmir ekki á Íslandi eftir allt saman Pétur Marteinn Páll Urbancic er látinn Edda tryllti gesti óvænt með Ladda Framtíð Mengis óráðin þó eignin sé til sölu Hjálmar H. Ragnarsson er látinn Fá rödd Guðna lánaða Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bókamarkaðnum Fræjum framtíðar sáð í gamlar bókasafnsbækur Gjöfull trekantur Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Ástin blómstraði á sýningu Tolla Sjá meira