Erlent

Stjórn­völd í Úkraínu banna í­þrótta­mönnum að keppa við Rússa og Bela­rúsa

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Úkraínska tenniskonan Marta Kostyuk keppti við Marketu Simkovu frá Tékklandi í undankeppni Billie Jean King Cup í Tyrklandi í morgun.
Úkraínska tenniskonan Marta Kostyuk keppti við Marketu Simkovu frá Tékklandi í undankeppni Billie Jean King Cup í Tyrklandi í morgun. Getty/Luke Walker

Stjórnvöld í Úkraínu hafa bannað landsliðum sínum að taka þátt í alþjóðlegum íþróttaviðburðum þar sem einstaklingar frá Rússlandi og Belarús eru meðal þátttakenda. 

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem íþróttaráðuneytið birti í nótt.

Samkvæmt Reuters var ákvörðunin tekin í kjölfar þess að Alþjóða Ólympíunefndin (IOC) heimilaði íþróttamönnum frá Rússlandi og Belarús að keppa sem „óháðir“ á viðburðum á vegum IOC.

Ákvörðun IOC vakti mikla reiði í Úkraínu en ákvörðun úkraínskra stjórnvalda um að leggja keppnisbann á eigið íþróttafólk hefur ekki síður vakið gagnrýni.

Yfirvöld höfðu áður varað innlend íþróttafélög við því að senda íþróttafólk til þátttöku á alþjóðlegum mótum þar sem Rússar og Belarúsar væru meðal þátttakenda. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×