Tónlist

Bein út­­sending: Hlust­enda­verð­­launin 2023

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Hlustendaverðlaunin 2023 verða afhent í kvöld.
Hlustendaverðlaunin 2023 verða afhent í kvöld. Vísir

Hlustendaverðlaunin 2023 verða afhent í Háskólabíói í kvöld. Verðlaunin verða sýnd í beinni útsendingu á Stöð 2 en auk þess verður hægt að fylgjast með útsendingunni á Vísi í spilaranum hér að neðan.

Útvarpsstöðvarnar Bylgjan, FM957 og X977 standa í sameiningu að Hlustendaverðlaununum. Markmiðið er að gefa íslenskum útvarpshlustendum og tónlistarunnendum tækifæri á að velja og verðlauna íslenskt tónlistarfólk, hljómsveitir og einstaklinga sem sköruðu fram úr í tónlist á síðastliðnu ári.

Kosning fór fram hér á Vísi og í kvöld kemur í ljós hverjir hljóta Hlustendaverðlaunin í ár. Kynnar kvöldsins eru þau Egill Ploder, Gústi B og Þórdís Valsdóttir.

Öllu verður tjaldað til og er von á sannkallaðri tónlistarveislu. Fram koma Friðrik Dór, Una Torfa, Júlí Heiðar, Reykjavíkurdætur, Superserious, Emmsjé, Gauti, Klara Elias, Eyþór Ingi og Babies, Daniil og Saga Matthildur. Kynnar kvöldsins verða þau Egill Ploder, Gústi B og Þórdís Valsdóttir.

Hér fyrir neðan má sjá hvaða listamenn eru tilnefndir til Hlustendaverðlaunanna í ár:

Lag ársins

  • Dýrð í dauðaþögn - Bríet
  • Upp á rönd - Hjálmar og GDRN
  • Bleikur og Blár - Friðrik Dór
  • Emmsjé Gauti - Klisja
  • Lengi lifum við - Jón Jónsson
  • Ástin heldur Vöku - Júlí Heiðar
  • Bye bye honey - Superserious
  • Aumingja þuríður - Ólafur Kram

Flytjandi ársins

  • GDRN
  • Systur
  • Bríet
  • Friðrik Dór
  • Emmsje Gauti
  • Júlí Heiðar
  • Skálmöld
  • Dr Gunni

Söngkona ársins

  • Sigrún Stella
  • Stefanía Svavars
  • Bríet
  • GDRN
  • Klara Elias
  • Karen Ósk
  • Margrét Rán
  • Brynhildur Karls

Söngvari ársins

  • Friðrik Dór
  • Krummi
  • Jónas Sig
  • Ásgeir Trausti
  • Aron Can
  • Júlí Heiðar
  • Birgir Hansen
  • Júníus Meyvant

Plata ársins

  • Ásgeir Trausti - Dýrð í dauðaþögn 10 ára / Time on my hands
  • Gdrn og Magnús Jóhann - 10 íslensk sönglög
  • Vök - Vök
  • Júníus Meyvant - Guru
  • Jói P - Fram í rauðan dauðann
  • Friðrik Dór - Dætur
  • Kvikindi - Ungfrú Ísland
  • Snorri Helgason - Víðihlíð

Nýliði ársins

  • Árný Margrét
  • Silja Rós
  • Una Torfa
  • Elín Hall
  • Daniil
  • Stefán Óli
  • Kvikindi
  • Ormar

Myndband ársins

  • Cold Feet - Bríet
  • Borderline - Ásgeir Trausti
  • Bolero - Gus Gus
  • Sorrowful Soil - Björk
  • Eyjanótt - Klara Elias
  • Turn This Around - Daugthers of Reykjavík
  • Jelly Belly - BSÍ
  • Slaki Babarinn - Blazroca og Egill Ólafs

Lagahöfundur ársins

  • Bubbi, fyrir lögin Tárin falla hægt, Ennþá er tími, Ertu góður og Sunnudagur (með laugardagskvöld í fanginu).
  • Friðrik dór og Pálmi Ragnar fyrir Bleikur og Blár, Friðrik Dór og Þormóður fyrir Þú.
  • Klara Elias, Alma og James Wong, fyrir lagið Eyjanótt.
  • Gauti Þeyr Másson og Þormóður, fyrir lagið Klisja.
  • Bríet og Pálmi Ragnar, fyrir lagið Flugdreki.
  • Hjálmar og GDRN, fyrir lagið Upp á rönd.
  • Björn Jörundur, fyrir lagið Reiknaðu með mér.
  • Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, fyrir lagið Með hækkandi sól.
  • Reykjavíkurdætur, fyrir lagið Tökum af stað.
  • Margrét Rán Magnúsdóttir (VÖK) Something Bad, No coffe at a funeral og Lost in the weekend.

Kítón verðlaunin (valið af stjórn Kítón)

  • Gugusar
  • Salka Valsdóttir
  • Hildur Kristín Stefánsdóttir
  • Herdís Stefánsdóttir
  • Margrét Rán Magnúsdóttir

Tengdar fréttir

„Algjör draumur að geta unnið við það sem ég elska“

Tónlistarkonan Una Torfadóttir ber marga hatta og segist fyrst og fremst vera stemningskona. Hún hefur verið í kringum tónlist allt sitt líf og segir algjöran draum að geta nú unnið við það sem hún elskar. Una Torfa er tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum.

„Maður er eins og guð í smá stund“

Tónlistarkonan og leikkonan Elín Hall skaust fyrst fram á sjónarsviðið árið 2015 þegar hún tók þátt í Söngvakeppninni aðeins sextán ára gömul. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá hjá Elínu, sem leikur meðal annars í sýningunni Níu líf í Borgarleikhúsinu og hefur gefið út sóló plötu. Elín Hall er tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum.

Stöðugt að verða sterkari manneskja

Tónlistarkonan Árný Margrét hefur spilað víða um heiminn þrátt fyrir að hafa tekið sitt fyrsta gigg fyrir einungis rúmu ári síðan á Airwaves. Með tónlistinni ögrar hún sér mikið þar sem hún er í grunnin feimin en segir gott að fara stöðugt út fyrir þægindarammann. Árný Margrét er tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum.

„Maður átti helst ekkert að tala um aldurinn sinn“

Tónlistarkonan og leikkonan Silja Rós er að eigin sögn orkumikil tilfinningavera sem lifir fyrir að skapa list. Það kom snemma í ljós hvert stefndi þar sem hún var syngjandi allan daginn sem barn og henni líður hvergi betur en á sviðinu. Silja Rós er tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum.

„Það er ekkert plan B“

Rapparinn Daniil skaust upp á stjörnuhimininn í fyrra en hann byrjaði í tónlist eftir að vinur hans fékk Macbook tölvu þegar þeir voru yngri. Honum finnst allt skemmtilegt við tónlistarbransann og stefnir bara lengra. Daniil er tilnefndur sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum.

Brotlenti svolítið eftir Söngvakeppnina

Tónlistarmaðurinn Stefán Óli vakti athygli þegar hann tók þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins í fyrra. Hann elskar að flytja sína eigin tónlist upp á sviði og stefnir á að gefa út plötu á komandi tímum. Stefán Óli er tilnefndur sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum.

„Ekkert erfitt við tónlist nema að fá pening fyrir hana“

Hljómsveitin Kvikindi samanstendur af Brynhildi Karlsdóttur, Friðriki Margrétar-Guðmundssyni og Valgeiri Skorra Vernharðssyni. Með tónlist sinni leggja þau upp úr því að koma fólki til að dansa í gegnum tárin, finna stelpulegu hliðina og elska meira en tónlistin hefur alltaf verið hluti af þeirra lífi. Kvikindi eru tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×