Handbolti

Rúnar á leið heim í Fram

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rúnar Kárason í leik með ÍBV.
Rúnar Kárason í leik með ÍBV. vísir/hulda margrét

Handboltamaðurinn Rúnar Kárason gengur til liðs við Fram eftir tímabilið. 

Fram hefur boðað til blaðamannafundar á morgun. Samkvæmt heimildum íþróttadeildar verður Rúnar þar kynntur til leiks hjá félaginu.

Rúnar hefur leikið með ÍBV undanfarin tvö ár en gengur í raðir Fram eftir tímabilið. Hann er uppalinn hjá félaginu og lék með því til 2009 þegar hann fór í atvinnumennsku.

Rúnar lék sem atvinnumaður í tólf ár, fyrst í Þýskalandi með Füchse Berlin, Bergischer, Grosswallstadt, Rhein-Neckar Löwen, Hannover-Burgdorf og svo með Ribe-Esbjerg í Danmörku í þrjú ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×