Erlent

Blettur á bringu Bidens reyndist húð­krabba­mein

Árni Sæberg skrifar
Joe Biden Bandaríkjaforseti er áttræður en við hestaheilsu, að sögn læknis Hvíta hússins.
Joe Biden Bandaríkjaforseti er áttræður en við hestaheilsu, að sögn læknis Hvíta hússins. Win McNamee/Getty

Læknar skáru nýverið blett af bringu Joes Biden Bandaríkjaforseta eftir að grunnfrumukrabbamein greindist í honum. Læknir forsetans segir enga frekari meðferð nauðsynlega.

Grunnfrumukrabbamein (e. basal cell carcinoma) er algengasta tegund húðkrabbameins og er ekki talið sérlega hættulegt þar sem það dreifir sér ekki eins og önnur krabbamein. 

Kevin O'Connor, læknir Hvíta hússins og læknir Bidens til lengri tíma, segir að allur krabbameinsvefur hafi verið fjarlægður af bringu Bidens og að sár eftir aðgerðina hafi gróið vel. AP greinir frá.

Krabbameinið uppgötvaðist við reglubundna heilsufarsskoðun forsetans og O'connor segir að forsetinn sé við hestaheilsu og fær um að gegna embættisstörfum sínum.

Áður en Biden tók við forsetaembættinu voru nokkur samskonar blettir fjarlægðir af líkama hans og læknir hans sagði í samantekt eftir heilsufarsskoðunina að vel væri vitað að forsetinn hafi varið löngum tíma í sólinni á sínum yngri árum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×