Byggja nýja blokk á bestu lóð Bíldudals Kristján Már Unnarsson skrifar 27. febrúar 2023 20:40 Björn Hembre er forstjóri Arnarlax á Bíldudal. Steingrímur Dúi Másson Tíu íbúða fjölbýlishús er í smíðum á Bíldudal, það stærsta sem þar hefur risið í nærri hálfa öld. Sveitarfélagið Vesturbyggð og fyrirtækið Arnarlax beittu sér fyrir húsbyggingunni og vonast menn til að fljótlega verði byggt annað álíka stórt, svo mikil er húsnæðisþörfin.
Í fréttum Stöðvar 2 kom fram að uppbygging bæði kalkþörungavinnslu og fiskeldis hafi leitt til mikillar grósku á Bíldudal. Þannig lét Íslenska kalkþörungafélagið byggja átta íbúða hús á Bíldudal fyrir fimm árum. Mikill vöxtur fiskeldis knýr á um enn fleiri íbúðir en Arnarlax er núna langfjölmennasti vinnustaðurinn þar, með milli 120 og 130 starfsmenn. Húsið er á sjávarlóð skammt frá íþróttahúsinu.Steingrímur Dúi Másson „Það er mjög mikilvægt að hafa stað til að búa á. Við verðum að reyna að fá fleiri íbúðir fyrir fólk á svæðinu. Það er afar mikilvægt,“ segir Björn Hembre, forstjóri Arnarlax. Það var síðast árið 1979 sem Bílddælingar sáu svo stóra blokk rísa í plássinu. Sveitarfélagið Vesturbyggð stendur að húsbyggingunni í samstarfi við Arnarlax og byggingafélagið Hrafnshól. Íbúðirnar verða ýmist seldar á markaði eða boðnar til leigu í gegnum Leigufélagið Bríeti. Húsið er tveggja hæða með tíu íbúðum.KMU Tíu íbúðir eru í nýja húsinu, bæði tveggja herbergja og þriggja herbergja, og verða þær afhentar fullbúnar um mánaðamótin maí-júní. Staðsetning hússins við fjöruborðið vekur athygli. „Já, þetta er besta lóðin í bænum. Þetta er afar fallegur staður. Þarna er rými fyrir fleiri íbúðir. Það verður næsta skrefið vonandi að við höldum áfram að byggja,“ segir Björn. Svona á fjölbýlishúsið að líta út fullbyggt í sumar.Hrafnshóll Þegar er farið að huga að öðru samskonar húsi, svo mikil er þörfin. „Já, það er mikil þörf og sérstaklega hér á Bíldudal. Margir starfsmenn búa á Tálknafirði og Patreksfirði sem gjarnan myndu vilja búa á Bíldudal. Það er því áfram mikil þörf fyrir íbúðir,“ segir forstjóri Arnarlax. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Vesturbyggð Fiskeldi Húsnæðismál Hús og heimili Byggðamál Tálknafjörður Tengdar fréttir Syngjandi kaupfélagsstjóri á Bíldudal Staðurinn er eina verslunin á staðnum, veitingastaðurinn, kaffihúsið og barinn í bænum, auk þess að vera félagsmiðstöð bæjarbúa. Hér erum við að tala um Vegamót á Bíldudal þar sem kaupfélagsstjórinn á það til að taka upp gítarinn og spila og syngja fyrir viðskiptavini. 15. ágúst 2022 21:16 Ætla að byggja hátæknifiskvinnsluhús fyrir eldisfisk á Patreksfirði Arnarlax og Vesturbyggð hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu hátæknivinnsluhúss fyrir eldisfisk í Vesturbyggð. Áætlað er að um 100 störf skapist með nýju fiskvinnslunni og gert ráð fyrir að hægt verði að vinna allt að 80 þúsund tonn af eldisfiski í húsinu. 13. maí 2022 18:23 Vilja gamla götumynd á Bíldudal og endurreisa Kaupmannshúsið Áform eru uppi á Bíldudal um að endurbyggja eitt veglegasta hús nítjándu aldar, Kaupmannshús Péturs J. Thorsteinssonar útgerðarmanns, þar sem sonur hans, listamaðurinn Muggur fæddist. Tvö önnur hús yrðu endurreist og þannig búin til gömul götumynd. 23. september 2021 23:15 Vestfirðingar vilja láta bora fern ný jarðgöng Forystumenn á Vestfjörðum telja þörf á minnst fernum nýjum jarðgöngum í fjórðungum til að koma samgöngumálum þar í viðunandi horf; einum á norðanverðum fjörðunum og þrennum á sunnanverðum. 6. janúar 2021 23:19 Þetta hús reis fyrir 40% af kostnaði í Reykjavík Eftir áratuga ördeyðu í íbúðabyggingum á Vestfjörðum er búið að reisa tvö raðhús á Tálknafirði og taka grunninn að öðrum tveimur. 18. júní 2017 20:30 Arnarlax 20 milljarða virði 6 árum eftir að Matthías mætti á Bíldudal Arnarlax er komið í flokk verðmætustu fyrirtækja landsins og telst yfir tuttugu milljarða króna virði, miðað við yfirtökutilboð sem norska félagið Salmar þarf að gera öðrum eigendum Arnarlax. 14. febrúar 2019 20:00 Mest lesið „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Innlent Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Innlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt Innlent Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Innlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent „Auðvitað hef ég íhugað það“ Innlent Myndir af lífinu um borð í hantaveiruskipinu Erlent Fleiri fréttir Keyrði niður ljósastaur á Vesturlandsvegi Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Starfsemi gæti hafist í nýjum Listaháskóla innan fjögurra ára Þriðja viljayfirlýsingin frá árinu 2007 undirrituð „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Oddviti Samfylkingar bregst við færslum borgarstjóra Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt „Sá gamli er miklu fallegri“ Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Fundu snyrtistofuna við húsleit í kjölfar umferðareftirlits Sjá meira
Syngjandi kaupfélagsstjóri á Bíldudal Staðurinn er eina verslunin á staðnum, veitingastaðurinn, kaffihúsið og barinn í bænum, auk þess að vera félagsmiðstöð bæjarbúa. Hér erum við að tala um Vegamót á Bíldudal þar sem kaupfélagsstjórinn á það til að taka upp gítarinn og spila og syngja fyrir viðskiptavini. 15. ágúst 2022 21:16
Ætla að byggja hátæknifiskvinnsluhús fyrir eldisfisk á Patreksfirði Arnarlax og Vesturbyggð hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu hátæknivinnsluhúss fyrir eldisfisk í Vesturbyggð. Áætlað er að um 100 störf skapist með nýju fiskvinnslunni og gert ráð fyrir að hægt verði að vinna allt að 80 þúsund tonn af eldisfiski í húsinu. 13. maí 2022 18:23
Vilja gamla götumynd á Bíldudal og endurreisa Kaupmannshúsið Áform eru uppi á Bíldudal um að endurbyggja eitt veglegasta hús nítjándu aldar, Kaupmannshús Péturs J. Thorsteinssonar útgerðarmanns, þar sem sonur hans, listamaðurinn Muggur fæddist. Tvö önnur hús yrðu endurreist og þannig búin til gömul götumynd. 23. september 2021 23:15
Vestfirðingar vilja láta bora fern ný jarðgöng Forystumenn á Vestfjörðum telja þörf á minnst fernum nýjum jarðgöngum í fjórðungum til að koma samgöngumálum þar í viðunandi horf; einum á norðanverðum fjörðunum og þrennum á sunnanverðum. 6. janúar 2021 23:19
Þetta hús reis fyrir 40% af kostnaði í Reykjavík Eftir áratuga ördeyðu í íbúðabyggingum á Vestfjörðum er búið að reisa tvö raðhús á Tálknafirði og taka grunninn að öðrum tveimur. 18. júní 2017 20:30
Arnarlax 20 milljarða virði 6 árum eftir að Matthías mætti á Bíldudal Arnarlax er komið í flokk verðmætustu fyrirtækja landsins og telst yfir tuttugu milljarða króna virði, miðað við yfirtökutilboð sem norska félagið Salmar þarf að gera öðrum eigendum Arnarlax. 14. febrúar 2019 20:00