Þýsku meistararnir höfðu betur í Íslendingaslag Meistaradeildarinnar Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 16. febrúar 2023 21:24 Gísli Þorgeir skoraði tvö fyrir Magdeburg í kvöld. Vísir/Getty Þýskalandsmeistarar Magdeburg unnu öruggan sjö marka sigur er liðið tók á móti ungversku meisturunum í Veszprém í Íslendingaslag Meistaradeildarinnar í handbolta í kvöld, 32-25.
Heimamenn í Magdeburg byrjuðu leikinn betur og náðu fljótt upp þriggja marka forskoti. Erfiðlega gekk að hrista gestina af sér og munurinn varð aldrei meiri en þrjú mörk í fyrri hálfleik, en Veszprém minnkaði muninn fyrir hálfleikshlé og staðan var 16-15 þegar gengið var til búningsherbergja. Eftir jafnar upphafsmínútur í síðari hálfleik tóku heimamenn í Magdeburg þó völdin og breyttu stöðunni úr 19-19 í 25-20. Eftir það voru gestirnir aldrei nálægt því að ógna forskoti þýsku meistaranna og niðurstaðan varð því sjö marka sigur Magdeburg, 32-25. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði tvö mörk fyrir Magdeburg í kvöld, en Ómar Ingi Magnússon var ekki með liðinu vegna meiðsla. Bjarki Már Elísson komst ekki á blað fyrir Veszprém. Magdeburg og Veszprém eru nú jöfn að stigum í öðru og þriðja sæti A-riðils með 16 stig eftir 12 leiki, en Magdeburg er með yfirhöndina í innbyrðis viðureignum og situr því sæti ofar.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Körfubolti Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Fótbolti Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Körfubolti Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Enski boltinn Skotflaug Húta setti strik í reikninginn hjá Ronaldo Fótbolti Dagskráin í dag: United-menn í Madrid og Hákon mætir Arsenal Fótbolti Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Fleiri fréttir Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sjá meira