Lífið

Fjórða fálkaorðan í fjölskylduna og framhald á Verbúð

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Nína Dögg var gestur í Bakaríinu á Bylgjunni.
Nína Dögg var gestur í Bakaríinu á Bylgjunni. Bylgjan

„Já, ég get alveg sagt að við erum á fullu að undirbúa, hugsa og pæla fyrir einhverskonar ákveðnu framhaldi,“ segir Nína Dögg Filippusdóttir sposk á svip aðspurð út í  framhald á sjónvarpsseríunni Verbúð. 

Óvænt velgengni Verbúðarinnar erlendis

Í morgunþættinum Bakaríið á Bylgjunni síðasta laugardag ræddi Nína Dögg meðal annars um Verbúðarævintýrið, kvikmyndina Villibráð, leikhúsið og lífið sjálft. 

Verbúð hefur hlotið mikla athygli erlendis og nú þegar sópað til sín fjölda verðlauna. Serían gengur því mjög vel á erlendum markaði sem Nína segir einstaklega gaman en þó fremur óvænt þar sem um ræðir þáttaseríu um séríslenskan raunveruleika á níunda áratugnum. 

„Við hugsuðum ekkert endilega að þetta myndi ná út fyrir landsteinana og hvað þá vinna til verðlauna, en það er auðvitað bara alltaf mjög ánægjulegt og hjálpar okkur að selja seríuna.“

Lofar að biðin verði ekki of löng

Þó svo að Nína staðfesti að framhald á Verbúðinni sé komið í ákveðið ferli er hún treg til svara og leyndardómsfull þegar reynt er að kreista út úr henni frekari upplýsingar. 

Frá því að hugmyndin vaknaði fyrst af Verbúðinni liðu um tíu ár þar til sjónvarpsserían leit dagsins ljós en aðspurð hvort að áhorfendur og aðdáendur þáttanna þurfi nokkuð að bíða svo lengi eftir næstu seríu segir Nína: 

„Nei, ég skal lofa að þið þurfið ekki að bíða svo lengi.“

Viðtalið við Nínu Dögg í heild sinni er hægt að nálgast í spilaranum hér fyrir neðan: 

Fólkið í Falcon Crest

Þann 1. janúar var Nína Dögg sæmd fálkaorðunni fyr­ir fram­lag sitt til leik­list­ar og sjón­varpsþátta- og kvik­mynda­gerðar. Það mætti kannski segja að orðan góð sé orðin eins konar góðvinur fjölskyldunnar í gegnum árin. 

Við erum fjögur! Amma mín, Sólveig Guðlaugsdóttir fyrir framlag sitt á heilbrigðissviði, Rakel Garðarsdóttir (mágkona) fyrir vitundarvakningu á matarsóun, Gísli, fyrir allt sem hann hefur gert, og svo ég.

Hús þeirra hjóna Nínu Daggar og Gísla Arnar, ber nafnið Sækambur Eystri en eftir að þau hjónin urðu bæði fálkaorðuhafar segir hún húsið komið með nokkurs konar gælunafn. 

„Já, við erum eiginlega búin að skíra það upp á nýtt, Falcon Crest,“ segir Nína og skellir upp úr.

Þarf helst að hreyfa sig á hverjum degi

Það er nóg að gera hjá Nínu þessa dagana eins og yfirleitt enda einstaklega orkumikil að eðlisfari.

Já, mér finnst bara gaman að vera til. En það er ákveðinn þroski að færast yfir mig núna og ég næ orðið alveg að chilla. 

Lærðir þú það í Covid? 

Já, eiginlega. Það sem Covid kenndi mér er að anda ofan í magann, ég er frekar ör. Ég að að hreyfa mig á hverjum degi og gera eitthvað smá.“

Sama dag og Nína mætti í viðtalið var leikritið Ex frumsýnt í Þjóðleikhúsinu en þar leikur hún eitt þriggja hlutverka ásamt eiginmanni sínum, Gísla Erni, og leikkonunni Kristínu Þóru Haraldsdóttur.

Hjartað í leikhúsinu

Leikritið er flugbeitt sálfræðidrama þar sem venjuleg kvöldstund „virðulegra hjóna“ breytist skyndilega eftir óvænt símtal fyrrverandi kærustu. 

Þau eru bara heima að chilla og svo kemur símtalið sem breytir öllu og upphefst allskyns áhugavert og skemmtilegt á milli þeirra.

Þrátt fyrir ágætis skammt af drama segir Nína að á forsýningunni hafi einnig verið mikið hlegið. 

„Þetta eru svolítið svona absúrd aðstæður og margir kannast líklega við eitthvað þarna úr hjónabandinu. Auðvitað eiga líka margir fyrrverandi og svona, svona allskonar togstreita.“ 

Nína hefur verið áberandi bæði í leikhúsi og sjónvarpi á sínum ferli og aðspurð hvor heimurinn höfði meira til hennar, leikhúsið eða bíó, segir hún: 

Leikhúsið á hjartað mitt. Ef ég þyrfti að velja þá myndi ég velja leikhúsið því ég elska leikhúsið og elska að vera í návist við áhorfendur og við séum saman í sögunni.

Morgunþátturinn Bakaríið er á dagskrá alla laugardaga frá 9 - 12 á Bylgjunni. Hægt er að nálgast síðasta þátt í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×