Umræðan

Hvort er betra að kaupa vöxt eða virði?

Helga Viðarsdóttir og Jökull Jóhannsson skrifar

Fjármagnskostnaður skiptir miklu máli fyrir val á hlutabréfum, líkt og hvort betra sé að kaupa vaxtarfyrirtæki eða virðisfyrirtæki. Vaxtafyrirtæki byggja eins og nafnið gefur til kynna á áætlunum um framtíðarvöxt. Slík fyrirtæki greiða oftast ekki út arð heldur plægja allar tekjur inn til fjárfestingar eða reksturs sem er ætlað að skila ábata að ákveðnum tíma liðnum. 

Vaxtarfyrirtæki geta verið áhugaverður kostur hjá fjárfestum þegar lánsfé er ódýrt. Það felur í sér að fórnarkostnaður þess að bíða eftir ábatanum er lægri. Þá felur vöxtur yfirleitt í sér fjárfestingar eða fjármagnsþörf sem verður dýrari með hærri vöxtum. Til að mynda hafa svokölluð FAANG hlutabréf (Facebook, Amazon, Apple, Netflix og Google) sem flokkast undir vaxtafyrirtæki ollið 19% falli á S&P vísitölunni árið 2022 sem telst vera versta ár vísitölunnar frá 2008.

Virðisfjárfestar leita að hlutabréfum sem hafa sterka grundvallarþætti, svo sem gott samkeppnisforskot, sterkan efnahagsreikning, góða stjórnendur og sögu um stöðugleika.

Fjárfesting í virðisfyrirtækjum er stefna sem felur tvennt í sér. Í fyrsta lagi að keyptir séu hlutir í fyrirtækjum með sterkt undirliggjandi greiðsluflæði og oftast stöðugar arðgreiðslur. Í öðru lagi fókus á að kaupa hlutabréf með hagstæðar verðkennitölur sem fela í sér hærra undirliggjandi virði en markaðsvirði þegar kaupin eiga sér stað. Það má segja að verið sé að kaupa fyrirtæki sem eru á afslætti.

Stefnan byggir á þeirri trú að stundum fái fyrirtæki ekki sanngjarna meðferð á mörkuðum vegna tískusveiflna, almenns efnahagsóróa eða svartsýni. Virðisfjárfestar leita þess vegna að hlutabréfum sem hafa sterka grundvallarþætti, svo sem gott samkeppnisforskot, sterkan efnahagsreikning, góða stjórnendur og sögu um stöðugleika. Þeir einbeita sér að fyrirtækjum sem hafa gefið hluthöfum stöðuga ávöxtun til lengri tíma.

Fjárfesting í virðisfyrirtækjum hefur í gegnum tíðina verið talin öruggari og áreiðanlegri leið til að ávaxta fjármagn fremur en fjárfesting í vaxtafyrirtækjum. Vaxtarfyrirtæki eru venjulega hlutabréf fyrirtækja sem búist er við að muni vaxa hratt í náinni framtíð en slíkt mat er alltaf óvissu háð. Framtíðin verður aldrei eins og búist er við. Þó að vaxtafyrirtæki geti verið mjög arðbær á tímum bolamarkaðar (e. bull market), geta þau einnig verið mjög sveiflukennd og áhættusöm á tímum bjarnarmarkaðar (e. bear market) . Fjárfesting í virðisfyrirtækjum hefur aftur á móti tilhneigingu til að veita stöðuga ávöxtun með minni sveiflum.

Fjárfesting í virðisfyrirtækjum hefur í gegnum tíðina verið talin öruggari og áreiðanlegri leið til að ávaxta fjármagn fremur en fjárfesting í vaxtafyrirtækjum.

Markaðir eru enn að jafna sig eftir niðursveiflu af völdum heimsfaraldurs og því vænlegra að að leggja áherslu á stöðugari fjárfestingar sem veita stöðugri ávöxtun. Þá er fjármagnskostnaður á leið upp alls staðar í heiminum. Sérfræðingar í virðisfjárfestingum sjá mikil tækifæri við núverandi markaðsaðstæður þar sem hlutabréf margra fyrirtækja eru lægri og því mörg kauptækifæri.

Höfundar stýra Spak Invest hf., sjóði sem fjárfestir í hlutabréfum virðisfyrirtækja.


Tengdar fréttir

Spak­ur Invest naut góðs af styrk­ing­u Band­a­ríkj­a­dals

Ágjöf á fjármálamörkuðum vegna óvissu í alþjóðlegu efnahagslífi hefur leitt þess að hlutabréfasjóðir, innlendir sem erlendir, hafa skilað tapi að undanförnu. Fjárfestingasjóðurinn Spakur Invest, sem fjárfestir einkum í bandarískum hlutabréfum, státaði af skástu ávöxtun allra innlendra hlutabréfasjóða sem fjárfesta aðeins erlendis. Ávöxtun sjóðanna frá áramótum var neikvæð um 13 til 31 prósent. Á sama tíma lækkaði íslenska úrvalsvísitalan um 27 prósent.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Umræðan

Sjá meira


×