Samninganefnd Eflingar hefur um helgina farið á hótel Íslandshótela í Reykjavík til að funda með félagsmönnum sínum um miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Formaður Eflingar segir atvinnurekendur hafa tekið misvel í þær heimsóknir.
„Auðvitað höfum við því miður heyrt ýmsar sögur af ógnandi og kúgandi tilburðum þar sem verið er að reyna að segja fólki fyrir verkum. Þar sem verið er að reyna með mjög markvissum hætti að knýja fram niðurstöðu í atkvæðagreiðslu sem er atvinnurekendum þóknandi. Það er auðvitað mjög leiðinlegt,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Vilja að ráðherra beiti sér gegn miðlunartillögu
Ríkissáttasemjari vill leggja tillögu sína í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna Eflingar en félagið ekki viljað afhenda kjörskrá. Sáttasemjari leitaði á föstudag til héraðsdóms til að fá gögnin afhent. Héraðsdómur tekur beiðni sáttasemjara fyrir á morgun.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson vinnumarkaðsráðherra varð við beiðni Eflingar að funda vegna stöðunnar í dag. Fundurinn átti að fara fram í fyrramálið en hefur nú verið frestað af ráðherra vegna fundar sem hann þarf að stýra í Kaupmannahöfn.
„Við vonum og ætlumst til þess að ráðherra komi þeim skilaboðum áfram til ríkissáttasemjara að best sé að draga þessa miðlunartillögu einfaldlega til baka.“
Fram kemur í bréfi sem Sólveig sendi ráðherra í gærkvöldi að hann skuli ekki vanmeta Eflingu og þau viðbrögð sem Efling muni beina að stofnunum hins opinbera sem á þessu máli beri ábyrgð.
Fagnar að verkalýðshreyfingin taki höndum saman
Hvað meinarðu með þessu?
„Mannkynssagan er auðvitað bara full af dæmum um það þegar jaðarsett fólk, sem valdastéttin hefur einhvern vegin komist upp með að halda úti í horni, rís upp og segir: Nei, við ætlum ekki að vera aftast í röðinni, við ætlum ekki að sætta okkur lengur við einhverja brauðmola frá ykkur heldur ætlum við að standa saman, berjast og vinna sigur.“
Annað kvöld mun niðurstaða atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun Eflingar liggja fyrir. Sólveig segir að verði verkfall, sem hefst 7. febrúar, samþykkt fari samninganefnd að skipuleggja næstu verkfallsaðgerðir strax á þriðjudag. Fari allt samkvæmt áætlun hefjist þau verkföll 14. febrúar.
Ríkissáttasemjari hefur verið harðlega gagnrýndur úr öllum áttum fyrir að setja miðlunartillögu sína í atkvæðagreiðslu.
„Þegar vegið er að þessum réttindum með svona grófum hætti þá auðvitað rís hreyfingin upp og það er mikið fagnaðarefni að sjá það.“