Handbolti

Fimmtíu bestu: Gæðastjórinn og sóknarséníið í Krikanum

Ásbjörn Friðriksson endaði í 5. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í handbolta á þessari öld.

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ásbjörn Friðriksson kom ungur til FH og hefur fest rætur í Kaplakrika. vísir

Ásbjörn Friðriksson endaði í 5. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í handbolta á þessari öld.

grafík/hjalti

FH hefur búið til marga stórkostlega handboltamenn í gegnum tíðina. Aron Pálmarsson, Geir Hallsteinsson, Kristján Arason, Loga Geirsson, Þorgils Óttar Mathiesen, Ólaf Guðmundsson og svo mætti áfram telja. En sá sem hefur gert mest fyrir FH síðustu þrjátíu árin eða svo er Akureyringur.

Það fór kannski ekki mikið fyrir því þegar Ásbjörn Friðriksson kom til FH frá Akureyri sumarið 2008, enda aðeins tvítugur að aldri og rétt búinn að fá nasaþefinn af efstu deild. En þvílíkur happafengur fyrir Fimleikafélagið. 

Ásbjörn hefur stýrt sóknarleik FH undanfarin fimmtán ár.vísir/bára

Ásbjörn hefur leikið með FH frá 2008, ef frá er talið tímabilið 2011-12 er hann spilaði í Svíþjóð. Þetta eru fjórtán tímabil hjá FH og fjórtán frábær tímabil. FH hefur verið í og við og toppinn á þessum tíma og Ásbjörn er ein stærsta ástæða þess.

Auk þess að vera leikmaður og stundum aðstoðarþjálfari er Ásbjörn líka eins og gæðastjóri í Kaplakrika. Á hans vakt líðst engin meðalmennska og ráin er alltaf ákveðið há. Alla stóru titlana sem FH hefur unnið frá 1994 hefur liðið unnið með Ásbjörn sem besta mann.

Ásbjörn hefur skorað rúmlega fimmtán hundruð mörk í efstu deild á Íslandi.vísir/vilhelm

Þrátt fyrir að vera með Ólaf Guðmundsson og Gústavsson, Baldvin Þorsteinsson og fleiri mikla kappa var Ásbjörn besti maður FH þegar liðið batt endi á nítján ára bið eftir Íslandsmeistaratitli 2011. Hann var markahæsti leikmaður úrslitakeppninnar og úrslitanna og stýrði sóknarleik FH-inga af stakri snilld.

FH vann svo tvo stóra titla á árunum 2017-19 og komst auk þess tvisvar sinnum í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn. FH-ingar hefðu eflaust viljað hafa aðeins meira upp úr krafsinu á þessum tíma en liðin 2017 og 2018 voru fáránlega sterk. En herslumuninn vantaði í úrslitunum gegn Val og ÍBV.

Þrátt fyrir að vera orðinn 34 ára gefur Ásbjörn lítið eftir. Hann er enn sami gæðastjórinn og sóknarseníið og hann hefur alltaf verið. Ásbjörn hefur skorað yfir fimmtán hundruð mörk í efstu deild og er einn markahæsti leikmaður hennar frá upphafi. Stóru titlarnir með FH eru þrír og Ásbjörn hugsar sér eflaust gott til glóðarinnar að bæta við þann fjölda þegar Aron kemur heim í Hafnarfjörðinn í sumar.

Ásbjörn verið í algjörum sérflokki í deildinni á Íslandi. Var strax ljóst að þar færi maður sem ætti eftir að ná langt. Fór til Svíþjóðar sem gekk ekki sem skildi og í raun algjör synd að Ásbjörn hafi ekki fengið tækifæri til að leika í Danmörku eða Þýskalandi. Hann hafði styrkinn til þess.

Gaupi

En einn eða tveir titlar til eða frá breyta því ekki að Ásbjörn er einn albesti leikmaður í sögu FH og sögu efstu deildar.


Tengdar fréttir






×