Stjarnan mætir Keflavík í fyrri undanúrslitaleik dagsins í VÍS bikarnum í Laugardalshöllinni en seinna um kvöldið mætast síðan Valur og Höttur.
Stjörnumenn eru ríkjandi bikarmeistarar eftir sigur á Þór Þorlákshöfn í bikarúrslitaleiknum í Smáranum í fyrra. Það var önnur bikarkeppnina á því tímabili því bikarkeppnin frá árinu á undan var spiluð fyrir tímabilið. Þar komst Stjarnan í úrslitaleikinn en tapaði á móti Njarðvík.
Arnar tók við þjálfun Stjörnuliðsins fyrir 2018-19 tímabilið og Garðbæjarliðið tapaði ekki bikarleik undir hans stjórn fyrstu tvö árin.
Stjarnan varð bikarmeistari 2019 eftir stórsigur á Njarðvík í bikarúrslitaleiknum og varði titilinn árið eftir með því að vinna Grindavík með fjórtán stiga mun í bikarúrslitaleiknum.
Stjarnan vann fyrstu þrettán bikarleikina sína undir stjórn Arnars og hefur nú aftur unnið sjö bikarleiki í röð undir hans stjórn.
Sigurhlutfall Stjörnuliðsins í bikarkeppni undir stjórn Arnars Guðjónssonar er nú 95 prósent eða tuttugu sigrar og eitt tap í 21 leik.
- Stjarnan í bikarkeppni undir stjórn Arnars Guðjónnssonar:
- 2018-19 Bikarmeistari (5 sigrar og 0 töp)
- 2019-20 Bikarmeistari (5 sigrar og 0 töp)
- 2021 Bikarsilfur (4 sigrar og 1 tap)
- 2021-22 Bikarmeistari (4 sigrar og 0 töp)
- 2022-23 Í undanúrslitum (3 sigrar og 0 töp)