„Föstur kveikja ekki á auka brennslu, þær virka einfaldlega því fólk borðar minna“ Stefán Barði Kristjönuson 5. janúar 2023 10:16 „Ég vil hjálpa fólki á vísindalegum grunni við að létta sig og koma sér í form og borða rétt," segir Stefán Barði Kristjönuson, einkaþjálfari. Stefán Barði Kristjönuson, einkaþjálfari ráðleggur fólki að setja sér viðráðanleg markmið og byrjarólega í ræktinni. Þá þurfi að lesa varlega í fullyrðingar sem finna má á netinu um heilsusamlegan lífsstíl. „
Það er mikið af misvísandi upplýsingum á netinu og fullyrðingar um hitt og þetta sem standast ekki. Þegar ég fór sjálfur í átak á sínum tíma ákvað ég að fara í einkaþjálfaraskólann til að fá botn í hvað er rétt og hvað er rangt. Ég leita mér alltaf áreiðanlegra heimilda sem byggja á raunverulegum rannsóknum og byggi mína vinnu og ráðleggingar til fólks á vísindalegum grunni,“ segir Stefán Barði og bendir á nokkur atriði sem hann segir ekki standast. „Til dæmis er oft verið að selja eða ráðleggja fólki sérstaka detox-kúra sem eiga að losa okkur við eiturefni en líkaminn sér einfaldlega um þetta sjálfur án aðstoðar. Við höfum lifur og nýru til þess og húðin gegnir líka hlutverki í þessu. Safar bæta þar engu við. Allir megrunarkúrar ganga út á það sama, hvort sem það heitir fasta eða ketó eða eitthvað annað, þeir ganga út á að neyta færri hitaeininga en þú brennir. Föstur kveikja ekki á auka brennslu eins og margir halda, þær virka einfaldlega því fólk er að borða minna,“ segir Stefán og bætir við að sykur sé ekki óvinurinn. „Sykur er ekki óvinurinn í sjálfu sér heldur er það oftar en ekki samspil sykurs og fitu sem gerir matinn girnilegan og fólk borðar of mikið af honum. Fólk borðar ekki sykur beint upp úr skál með skeið en þegar hann er kominn í súkkulaði, ís, og kökur eða annað getur maður innbyrt meira. Það er heldur ekki rétt að sætuefni séu slæm fyrir okkur eins og oft er haldið fram. Samkvæmt rannsóknum sem ég hef kynnt mér er ekkert að sætuefnum,“ segir Stefán Barði. „Ég mæli með því að byrja ekki of geyst. Ekki skella þér á ketó-kúr og mæta tólf sinnum í viku í ræktina, það verður bara til þess að fólk springur á því." Svindldagar vond hugmynd „Ég vil hjálpa fólki á vísindalegum grunni við að létta sig og koma sér í form og borða rétt. Það þýðir yfirleitt lítið eða ekkert að fara í stranga megrun eða á einhvern kúr, yfirleitt springa allir á endanum. Svindldagar eru hræðileg hugmynd, að vera í aðhaldi alla vikuna en innbyrða svo á einum degi allar þær kaloríur sem þú hafðir forðast. Fólk þarf að breyta því hvernig það nálgast mat og borða hollt u.þ.b 80% af tímanum og leyfa sér 20% af tímanum.“ Hvernig er best að byrja þegar fólk vill taka sig á? „Ég mæli með því að byrja ekki of geyst. Ekki skella þér á ketó-kúr og mæta tólf sinnum í viku í ræktina, það verður bara til þess að fólk springur á því og þá líður því illa. Setjum okkur viðráðanleg markmið og náum þeim. Það er til dæmis gott að stefna á að missa eitt kíló fyrsta mánuðinn og svo tvö kíló þann næsta. Mæta tvisvar í viku í ræktina fyrsta mánuðinn og svo þrisvar í viku þann næsta, fara að labba meira og auka skrefafjöldann og bæta svo jafnt og þétt í. Varðandi mataræðið ætti að auka próteininntöku um 25 grömm á dag, bæta í trefjarnar og auka grænmeti og ávexti en ekki neita sér um uppáhaldsmatinn sinn þó hann sé óhollur, hafa hann inni á matseðlinum en í minna magni. Við þekkjum það öll að ef við segjum við okkur sjálf „ekkert súkkulaði“ þá gengur flestum illa að hætta að hugsa um súkkulaði. Svo er alltaf gott að bóka fyrsta mánuðinn með einkaþjálfara til að koma sér af stað, læra að gera æfingarnar rétt og fá viðeigandi prógramm til að fylgja. Hægt er að haft beint samband við mig á netfangið stefanbardi3@gmail.com og einnig hægt að fylgja mér á Instagram og Tik tok undir „stefanb.einkathjalfari" þar sem ég gef góð ráð.“
Heilsa Mest lesið Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Lífið Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Lífið Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 Lífið Ásdís Rán býður forsetaefnum á rauða dregilinn Lífið „Blessunarlega ekkert stoppaður af foreldrum mínum“ Tíska og hönnun Hafa ekki sést saman í sjö vikur Lífið Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Lífið Myndaveisla: Sællegar skvísur í sumarfíling Lífið „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Lífið Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Lífið Fleiri fréttir X-ið ógnar en Bylgjan ekki? Heldur FM957 bikarnum? Nýja línan frá Barton Perreira kynnt í Auganu Óreiðulaus eldhús með þráðlausu kerfi KitchenAid Verum viðbúin með góðri vörn þegar sólin skín! Magnesíum potturinn í Laugardalslaug snýr aftur! Bill Barton kemur í Augað í Kringlunni Sumar að hætti Múmínálfanna lokkar þig út í góða veðrið Einstakar húðmeðferðir sem auka heilbrigði húðarinnar „Okkar sérsvið liggur í sætindum“ – mæðradagsbombur frá 17 sortum Glæsileg dagskrá á Þjónustudegi Toyota á laugardag Umfram allt að húsgögnin þoli íslenskt veðurfar Nýi Draumurinn slær í gegn Dáleiðsludagurinn 11. maí Er hægt að nota of mikið af sólarvörn? Taktu þátt í Ford Fantasy leik Bestu deildar karla Ný vörulína lagar litabletti í húð The House of Beauty fagna sex ára afmæli með látum Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sjá meira