Körfubolti

Elvar skoraði tíu í öruggum Meistaradeildarsigri

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Elvar Már Friðriksson átti flottan leik fyrir Rytas Vilnius í kvöld.
Elvar Már Friðriksson átti flottan leik fyrir Rytas Vilnius í kvöld. VÍSIR/VILHELM

Elvar Már Friðriksson átti góðan leik fyrir Rytas Vilnius er liðið vann öruggan 23 stiga sigur gegn gríska liðinu PAOK í Meistaradeild Evrópu í körfubolta í kvöld, 85-62.

Var þetta fyrri leikur liðanna í umspili um sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar, en Elvar og félagar tóku forystuna snemma leiks.

Heimamenn í Rytasleiddu með 14 stiga mun þegar liðin gengu til búningsherbergja í hálfleikshléið og liðið vann að lokum öruggan 23 stiga sigur, 85-62.

Elvar nýtti sínar mínútur vel og skoraði tíu stig, tók tvö fráköst og gaf fimm stoðsendingar á þeim 18 mínútum sem hann spilaði. Rytas og PAOK mætast aftur að tveimur vikum liðnum þar sem kemur í ljós hvort liðið tryggir sér sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×