Erlent

Aldrei fleiri látist í skot­á­rásum í Sví­þjóð en árið 2022

Atli Ísleifsson skrifar
Alls voru 45 skotnir til bana á árinu 2021 í Svíþjóð. Árið 2022 létust 63 í slíkum árásum.
Alls voru 45 skotnir til bana á árinu 2021 í Svíþjóð. Árið 2022 létust 63 í slíkum árásum. EPA

Aldrei hafa fleiri látist í skotárásum í Svíþjóð á einu og sama árinu og á nýliðnu ári. Alls létust 63 í slíkum árásum á síðasta ári.

Sænskir fjölmiðlar sögðu frá því í dag að fjöldinn hafi farið í 63 eftir að ungur karlmaður var skotinn til bana fyrir utan McDonald‘s-veitingastað í norðvesturhluta höfuðborgarinnar Stokkhólms á gamlársdag.

Um er að ræða mikla fjölgun látinna í skotárásum frá árinu 2021 þegar skráð voru 45 slík dauðsföll í landinu.

Á síðustu dögum ársins barst fjöldi tilkynninga um einstaka skotárásir og sprengjuárásir í Stokkhólmi. Fjölmiðlar hafa sagt frá því að árásirnar hafi flestar beinst að mönnum sem hafi komið að ýmist ráninu á eða morðinu á rapparanum Einár sem var skotinn til bana í Stokkhólmi síðla árs 2021.

Einár var einn vinsælasti tónlistarmaður Svíþjóðar og þekktur fyrir að hafa tengsl við glæpasamtök í höfuðborginni. Honum var rænt árið 2020 og skotinn til bana í október 2021, viku áður en hann átti að bera vitni í málinu gegn þeim mönnum sem rændu honum ári fyrr.

Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir stöðuna grafalvarlega.EPA

Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir í færslu á Facebook fyrr í dag að það sé illskiljanlegt að staðan sé þannig að 63 hafi verið skotnir til bana í landinu á einu ári. „Ekkert annað land, sem ekki á í stríði, glímir við þetta.“

Kristersson segir að til samanburðar megi nefna að í Finnlandi hafi tveir verið skotnir til bana á síðasta ári og í Danmörku og Noregi hafi þeir verið fjórir. Nauðsynlegt sé að grípa áfram til markvissra aðgerða til að stemma stigu við þessari þróun.

„Þessir menn munu ekki hætta að skjóta hvern annan til bana fyrr en þeir einfaldlega geta það ekki lengur. Þar sem þeir verða læstir inni, þar sem lögreglunni hefur tekist að ná þeim og þar sem dómstólar hafa sakfellt þá,“ segir Kristersson.


Tengdar fréttir

Einn vin­sælasti rappari Sví­þjóðar skotinn til bana

Sænski rapparinn Einár var skotinn til bana í Hammarby sjöstad í Stokkhólmi í gærkvöldi. Sænskir fjölmiðlar greina frá því að heimildarmenn segi Einár hafa ítrekað verið hótað. Morðið er talið tengjast átökum glæpagengja í sænsku höfuðborginni.

Var rænt á síðasta ári og hafði fé verið sett til höfuðs honum

Sænski rapparinn Einár, sem skotinn var til bana í gærkvöldi, átti þrátt fyrir ungan aldur fortíð innan heims sænskra glæpagengja. Honum hafði áður verið rænt af hópi manna. Fé hafði verið sett til höfuðs honum nokkrum vikum áður en honum var ráðinn bani. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×