Handbolti

„Innst inni er ég mjög ánægður með þessa ákvörðun“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Aron Pálmarsson brosti sínu breiðasta þegar hann var kynntur til leiks sem nýr leikmaður FH frá og með næsta tímabili.
Aron Pálmarsson brosti sínu breiðasta þegar hann var kynntur til leiks sem nýr leikmaður FH frá og með næsta tímabili. Vísir/Hulda Margrét

Aron Pálmarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handbolta og einn besti handboltamaður heims undanfarin áratug, skrifaði fyrr í kvöld undir samning við uppeldisfélag sitt FH og mun leika með liðinu á næsta tímabili í Olís-deild karla.

Múgur og margmenni var mættur í Kaplakrika í kvöld til að taka á móti hetjunni sem er að snúa aftur til FH eftir 14 ár í atvinnumennsku. Þessi 32 ára gamla skytta segir tilfinninguna hafa verið ótrúlega þegar hann gekk inn í salinn.

„Mér líður bara frábærlega. Ég bjóst nú alveg við fólki í Krikann, en ekki alveg svona kannski. Þetta sýnir bara hvað klúbburinn er flottur og þetta er spennandi,“ sagði Aron í samtali við Svövu Kristínu Grétarsdóttur að undirskriftinni lokinni.

Það kom líklega flestum á óvart þegar fréttir fóru að berast af því í morgun að Aron væri á heimleið eftir 14 ára atvinnumannaferil. Aron er enn aðeins 32 ára gamall og á því enn nokkur ár eftir af ferlinum, en hann segir að dóttir hans sem er búsett hér á landi hafi lengi togað í hann.

„Ég er alveg búinn að hafa þetta lengi í maganum og alvarlega síðan kannski í sumar eða snemma í haust. Í rauninni hefur þetta aðeins dregið á mig síðan stelpan mín fæddist. Hún náttúrulega býr hérna á Íslandi þannig að það skiptir auðvitað miklu máli.“

„En svo í sumar, eða rétt eftir sumarið, þá fannst mér ég vera að hallast að því að koma heim. Þannig ég hafði bara samband við FH og þá gekk þetta - allavega fyrir mitt leyti - frekar „smooth“. Þannig ég er bara þakklátur FH og auðvitað Álaborg fyrir skilninginn. Þetta endaði bara þannig að þetta kláraðist hérna í dag.“

Þá segir Aron að samtalið við Álaborg hafi verið gríðarlega erfitt.

„Ég frestaði því örugglega nokkrum sinnum. Þannig að samtalið í fyrsta lagi var mjög erfitt, en það var léttir þegar það var búið. Svo tók það nokkrar vikur líka að klára að skrifa undir það. Ekki það, við vorum búin að ná samkomulagi, en bara að taka þessa ákvörðun.“

„En innst inni er ég mjög ánægður með þessa ákvörðun. Hún var erfið en að sama skapi líka auðveld finnst mér.“

Eins og Aron segir þá var það hann sem hafði samband við FH að fyrra bragði og leikmaðurinn fer ekkert ofan af því að það var aldrei neitt annað lið sem kom til greina.

„Nei. Ég held að flestir viti það að ég myndi aldrei spila með neinu öðru liði á Íslandi þannig ég gaf aldrei færi á mér í eitthvað svoleiðis.“

Þá segir Aron að þrátt fyrir það að ákvörðunin um að koma heim til að vera meira með dóttur sinni hafi í sjálfu sér verið auðveld þá hafi ákvörðunin um að koma heim til að spila handbolta, enn aðeins 32 ára gamall, verið erfið.

„Já algjörlega. Við skulum heldur ekkert gleyma því að ég er búinn að búa úti í 14 ár núna og þekki ekkert annað öll mín fullorðinsár. Þannig að það er í mörg hörn að líta og eins og ég sagði áðan þá er þetta búið að taka langan tíma. Ég er búinn að fara yfir þetta margoft, tala við mitt fólk, utanaðkomandi fólk og ég veit ekki hvað og hvað.“

„En á endanum komst ég alltaf að því að þetta væri besta ákvörðunin fyrir mig og mína. Nú get ég bæði spilað handbolta og eins og ég sagði í yfirlýsingunni minni í dag þá er ég ekkert að koma heim til að enda ferilinn. Ég ætla bara að halda mér á þeim stað sem ég er og eins og með landsliðið og annað þá þarf ég að halda mér í góðu standi. Ég er fyrirliði þeirra og ætla að halda mér þar, þannig ég á nóg eftir,“ sagði FH-ingurinn Aron Pálmarsson.

Viðtalið við Aron má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir

Aron formlega kynntur til leiks hjá FH

Landsliðsfyrirliðinn Aron Pálmarsson var rétt í þessu kynntur sem nýr leikmaður FH í Olís-deild karla í handbolta á blaða- og stuðningsmannakvöldi FH-inga. Hann gengur til liðs við félagið frá danska liðinu Álaborg að þessu tímabili loknu.

Bein útsending: FH kynnir Aron til leiks

Vísir er með beina útsendingu frá blaðamannafundi FH þar sem landsliðsfyrirliðinn Aron Pálmarsson verður kynntur til leiks hjá félaginu.

Aron á heimleið

Aron Pálmarsson, fyrirliði íslenska handboltalandsliðsins, yfirgefur herbúðir danska félagsins Álaborgar í sumar. Samkvæmt öruggum heimildum íþróttadeildar er hann á leið til FH.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×