Samstarf

Nýsköpun sem gæti umbylt íslenskum sauðfjárbúskap

Icewear
Einstakir eiginleikar íslensku ullarinnar eru nýttir í einangrun nýrrar útivistarlínu frá Icewear.
Einstakir eiginleikar íslensku ullarinnar eru nýttir í einangrun nýrrar útivistarlínu frá Icewear.

„Þetta er nýsköpun á heimsmælikvarða, ekki bara fyrir okkar fyrirtæki heldur fyrir Ísland og íslenska sauðfjárbændur. Eiginleikar íslensku ullarinnar er svo einstakir í heiminum að þá er ekki hægt að kópera,“ segir Ágúst Þór Eiríksson, eigandi útivistarfyrirtækisins Icewear en Icewear hefur þróað línu útivistarfatnaðar sem einangraður er með íslenskri ull.

„Við lítum á þetta sem framtíðarverkefni sem verður ein meginstoð fyrirtækisins," segir Ágúst Þór Eiríksson, eigandi útivistarfyrirtækisins Icewear 

Línan samanstendur af léttum jökkum, vetrarúlpum, vestum og buxum auk smávöru eins og vettlingum og óhætt er að segja að hún hafi slegið í gegn.

„Viðtökurnar hafa farið fram úr björtustu vonum, hjá Íslendingum en ekki síður erlendum ferðamönnum. Fólk hefur tekið þessari nýjung fagnandi og segir að þetta slái við öllu sem það hefur notað í sinni útivist. Flíkurnar eru léttar og eiginleikar ullarinnar gera það að verkum að þær anda betur, fólk svitnar minna og þær veita fullkomið skjól. Ullin þolir rigningu og bleytu sem dúnn þolir til dæmis ekki og heldur á fólki hita þó hún blotni. Þá hefur ullin temprandi eiginleika svo okkur verður ekki of heitt þó við förum inn í hús, “ útskýrir Ágúst. 

„Við kveiktum strax á perunni að það væri engin önnur ull betri til að nota í einangrun en okkar íslenska.“
Línan samanstendur af léttum jökkum, vetrarúlpum, vestum og buxum auk smávöru eins og vettlingum

Íslenska ullin er samsett úr tveimur lögum, togi og þeli sem gerir hana loftmikla og létta en afar einangrandi. Icewear hóf þróunarvinnu á ullareinangrun árið 2020 og strax sama ár var fyrsta prótótýpa klár. Fyrstu flíkurnar voru kynntar á markað 1. desember 2021 en það þótti við hæfi að kynna línuna á fullveldisdaginn.

„Við höfum þróað einangrunina á tvennan hátt. Við blöndum ullina við pólýester til að gera sterkari einangrunarplötur, allt frá 60 gramma til 200 gramma, eftir því hvað flíkin er þykk en í þykkari vetrarúlpur er ullinni blandað í kúlur sem er sprautað inn í flíkina,“ útskýrir Ágúst. Hann telur verkefnið geta haft jákvæð áhrif á íslenskan sauðfjárbúskap.

„Við notum mislita ull sem bændur hafa verið í vandræðum með að fá gott verð fyrir en miðað við eftirspurnina sem við verðum vör við gæti þetta orðið búbót fyrir greinina,“ segir Ágúst og bætir við að markaðurinn fyrir útivistarfatnað sé margfalt stærri en markaðurinn fyrir prjónaðar ullarpeysur.

„Ég hef verið viðloðandi íslensku ullina allt frá 1983 og byggi fyrirtækið á ullarvörum en þetta er einstök nýjung. 

Miðað við eiginleika vörunnar er ég sannfærður um að þetta verður stórt fyrir búgreinina og ég tel að það geti gerst hraðar en fólk áttar sig á. 

Icewear er stórt fyrirtæki á íslenskum markaði og við höfum lagt gríðarlega fjármuni í að þróa þessa vöru. Við erum eina útivistarfyrirtækið sem notar ull sem aðalstoðina í fatnað og ullin er lífrænt efni meðan mikið af útivistarfatnaði er fóðraður eingöngu með gerviefnum. Við lítum á þetta sem framtíðarverkefni sem verður ein meginstoð fyrirtækisins. Það er einfaldlega ekki hægt að kópera íslensku ullina, eins og skyrið og þeir sem fara í ullareinangruðu flíkurnar okkar einu sinni fara ekki til baka.“





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×