Viðskipti erlent

Kona í fyrsta sinn ráðin forstjóri stærsta fyrirtækis Grænlands

Kristján Már Unnarsson skrifar
Susanne Arfelt Rajamand með karfa úr grænlenskum sjó.
Susanne Arfelt Rajamand með karfa úr grænlenskum sjó. Royal Greenland

Stjórn sjávarútvegsrisans Royal Greenland hefur ráðið nýjan forstjóra. Fyrir valinu varð hin danska Susanne Arfelt Rajamand en hún hefur mikla alþjóðlega reynslu úr matvælageiranum.

Þetta er í fyrsta sinn sem kona er ráðin forstjóri þessa stærsta fyrirtækis Grænlands. Hún tekur við starfinu þann 1. febrúar næstkomandi af Mikael Thinghus, sem tilkynnti í byrjun ársins að hann hygðist láta af störfum eftir að hafa stýrt fyrirtækinu í ellefu ár.

Í fréttatilkynningu Royal Greenland kemur fram að Susanne hafi lært viðskiptahagfræði við Handelshøjskolen í Kaupmannahöfn, Copenhagen Business School, og síðar lokið MBA-námi fyrir stjórnendur frá Tsinghua háskólanum í Peking.

Susanne er 47 ára gömul og þriggja barna móðir.Royal Greenland

Undanfarin 15 ár hefur hún verið búsett í Singapúr þar sem hún hefur verið framkvæmdastjóri yfir einni deild mjólkurrisans Fonterra í Suðaustur-Asíu. Áður starfaði hún hjá neytendavöruframleiðandanum Unilever þar sem hún byrjaði sem starfsnemi í Danmörku og vann sig upp í framkvæmdastjórastarf í Singapúr.

„Susanne hefur prófílinn, alþjóðlega reynslu og persónuleika til að stýra mikilvægasta fyrirtæki Grænlands. Hún mun hjálpa til við að tryggja áframhaldandi þróun Royal Greenland á Grænlandi og viðhalda alþjóðlegri áherslu," segir Maliina Abelsen, stjórnarformaður Royal Greenland, í fréttatilkynningu.

Susanne er fædd í Danmörku árið 1975 og mikil tungumálamanneskja. Auk dönsku er hún sögð tala reiprennandi ensku, spænsku og þýsku og jafnframt ráða við samningaviðræður á frönsku og sænsku. Í Sermitsiaq kemur fram að eiginmaður hennar sé sænskur, þau eigi þrjú börn á skólaaldri, og fjölskyldan muni setjast að í Nuuk.

Höfuðstöðvar Royal Greenland eru við höfnina í Nuuk.Royal Greenland

Royal Greenland er alfarið í eigu grænlensku landsstjórnarinnar og er með höfuðstöðvar í Nuuk. Velta þess í fyrra nam 5,6 milljörðum danskra króna, andvirði 112 milljarða íslenskra, og voru starfsmenn 2.237 talsins.

Fyrirtækið gerir út átta stór fiskiskip, togara og uppsjávarskip. Það rekur alls 37 fiskvinnslustöðvar víðs vegar um Grænland, margar þó mjög litlar, en einnig níu vinnslustöðvar á austurströnd Kanada og tvær í Þýskalandi. Þá er Royal Greenland með söluskrifstofur víða um heim, meðal annars í tíu Evrópuríkjum, í Kanada, Bandaríkjunum, Chile, Kína og Japan.


Tengdar fréttir

Grænlendingar opna fyrsta hluta nýs alþjóðaflugvallar

Hluti nýju flugbrautarinnar í Nuuk var opnaður flugumferð í vikunni. Þetta er fyrsti stóri áfanginn sem næst í þeirri miklu flugvallagerð sem Grænlendingar hófu fyrir þremur árum en hún er mesta innviðauppbygging í sögu þessa næsta nágrannalands Íslendinga.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×