Kona í fyrsta sinn ráðin forstjóri stærsta fyrirtækis Grænlands Kristján Már Unnarsson skrifar 23. nóvember 2022 13:18 Susanne Arfelt Rajamand með karfa úr grænlenskum sjó. Royal Greenland Stjórn sjávarútvegsrisans Royal Greenland hefur ráðið nýjan forstjóra. Fyrir valinu varð hin danska Susanne Arfelt Rajamand en hún hefur mikla alþjóðlega reynslu úr matvælageiranum.
Þetta er í fyrsta sinn sem kona er ráðin forstjóri þessa stærsta fyrirtækis Grænlands. Hún tekur við starfinu þann 1. febrúar næstkomandi af Mikael Thinghus, sem tilkynnti í byrjun ársins að hann hygðist láta af störfum eftir að hafa stýrt fyrirtækinu í ellefu ár. Í fréttatilkynningu Royal Greenland kemur fram að Susanne hafi lært viðskiptahagfræði við Handelshøjskolen í Kaupmannahöfn, Copenhagen Business School, og síðar lokið MBA-námi fyrir stjórnendur frá Tsinghua háskólanum í Peking. Susanne er 47 ára gömul og þriggja barna móðir.Royal Greenland Undanfarin 15 ár hefur hún verið búsett í Singapúr þar sem hún hefur verið framkvæmdastjóri yfir einni deild mjólkurrisans Fonterra í Suðaustur-Asíu. Áður starfaði hún hjá neytendavöruframleiðandanum Unilever þar sem hún byrjaði sem starfsnemi í Danmörku og vann sig upp í framkvæmdastjórastarf í Singapúr. „Susanne hefur prófílinn, alþjóðlega reynslu og persónuleika til að stýra mikilvægasta fyrirtæki Grænlands. Hún mun hjálpa til við að tryggja áframhaldandi þróun Royal Greenland á Grænlandi og viðhalda alþjóðlegri áherslu," segir Maliina Abelsen, stjórnarformaður Royal Greenland, í fréttatilkynningu. Susanne er fædd í Danmörku árið 1975 og mikil tungumálamanneskja. Auk dönsku er hún sögð tala reiprennandi ensku, spænsku og þýsku og jafnframt ráða við samningaviðræður á frönsku og sænsku. Í Sermitsiaq kemur fram að eiginmaður hennar sé sænskur, þau eigi þrjú börn á skólaaldri, og fjölskyldan muni setjast að í Nuuk. Höfuðstöðvar Royal Greenland eru við höfnina í Nuuk.Royal Greenland Royal Greenland er alfarið í eigu grænlensku landsstjórnarinnar og er með höfuðstöðvar í Nuuk. Velta þess í fyrra nam 5,6 milljörðum danskra króna, andvirði 112 milljarða íslenskra, og voru starfsmenn 2.237 talsins. Fyrirtækið gerir út átta stór fiskiskip, togara og uppsjávarskip. Það rekur alls 37 fiskvinnslustöðvar víðs vegar um Grænland, margar þó mjög litlar, en einnig níu vinnslustöðvar á austurströnd Kanada og tvær í Þýskalandi. Þá er Royal Greenland með söluskrifstofur víða um heim, meðal annars í tíu Evrópuríkjum, í Kanada, Bandaríkjunum, Chile, Kína og Japan.
Grænland Sjávarútvegur Matvælaframleiðsla Jafnréttismál Tengdar fréttir Grænlendingar opna fyrsta hluta nýs alþjóðaflugvallar Hluti nýju flugbrautarinnar í Nuuk var opnaður flugumferð í vikunni. Þetta er fyrsti stóri áfanginn sem næst í þeirri miklu flugvallagerð sem Grænlendingar hófu fyrir þremur árum en hún er mesta innviðauppbygging í sögu þessa næsta nágrannalands Íslendinga. 6. nóvember 2022 10:10 Nuuk er að stækka upp í 30 þúsund manna borg Borgaryfirvöld í Nuuk á Grænlandi búa sig undir að íbúum þar fjölgi upp í þrjátíu þúsund á næstu þrettán árum. 22. febrúar 2017 20:45 Breytingar í sjóflutningum skapa ný störf og tækifæri á Grænlandi Grænlendingar sjá fram á að efnahagslegt sjálfstæði Grænlands muni styrkjast með nýrri höfn í Nuuk og með samstarfssamningum við Íslendinga um sjóflutninga. 30. janúar 2017 21:15 Mest lesið Hryllingssögur og dæmi: „Slúbbertar halda heilu stofnunum í gíslingu“ Atvinnulíf Hætta með spilakassa á Ölveri Viðskipti innlent Vara við „Lafufu“ Viðskipti erlent Tekur við starfi forstjóra Samkaupa Viðskipti innlent Aukið samstarf opni á fleiri tengimöguleika til vesturstrandar Bandaríkjanna Viðskipti innlent Kaupa bræðurna út: „Við vorum sammála um að vinna ekki lengur saman“ Viðskipti innlent Spáir endalokum Play á Íslandi: „Fjárfestar voru lokkaðir að stofnun þessa félags“ Viðskipti innlent Segir „vanstilltan“ starfsmann Icelandair kominn úr skotgröfunum Viðskipti innlent Þrjár ráðnar til Krafts Viðskipti innlent Björn Hlynur kaupir Ölver ásamt æskuvinum sínum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vara við „Lafufu“ Framkvæmdastjóri Nestlé látinn fara í kjölfar ástarsambands Frakkar þurfi mögulega að leita aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins Risinn sem var of stór til að falla er fallinn Facebook gagnrýnt fyrir að leyfa gervigreind að reyna við börn Vilja ekkert með áfengi nágranna sinna hafa Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Kynntu nýja útgáfu ChatGPT: „Þetta er eins og að tala við sérfræðing“ Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Sjá meira
Grænlendingar opna fyrsta hluta nýs alþjóðaflugvallar Hluti nýju flugbrautarinnar í Nuuk var opnaður flugumferð í vikunni. Þetta er fyrsti stóri áfanginn sem næst í þeirri miklu flugvallagerð sem Grænlendingar hófu fyrir þremur árum en hún er mesta innviðauppbygging í sögu þessa næsta nágrannalands Íslendinga. 6. nóvember 2022 10:10
Nuuk er að stækka upp í 30 þúsund manna borg Borgaryfirvöld í Nuuk á Grænlandi búa sig undir að íbúum þar fjölgi upp í þrjátíu þúsund á næstu þrettán árum. 22. febrúar 2017 20:45
Breytingar í sjóflutningum skapa ný störf og tækifæri á Grænlandi Grænlendingar sjá fram á að efnahagslegt sjálfstæði Grænlands muni styrkjast með nýrri höfn í Nuuk og með samstarfssamningum við Íslendinga um sjóflutninga. 30. janúar 2017 21:15
Spáir endalokum Play á Íslandi: „Fjárfestar voru lokkaðir að stofnun þessa félags“ Viðskipti innlent
Spáir endalokum Play á Íslandi: „Fjárfestar voru lokkaðir að stofnun þessa félags“ Viðskipti innlent