Sneri alltaf aftur á lögreglustöðina Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 20. nóvember 2022 07:53 Um hundrað mál voru bókuð hjá lögreglu í gær og í nótt. Vísir/Vilhelm Ökumaður sem stöðvaður var í Breiðholti vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna virðist ekki hafa verið á þeim buxunum að yfirgefa lögreglustöðina í Kópavogi að lokinni sýnatöku í gær.
Þetta er á meðal þess sem kemur fram í dagbókarfærslu lögreglu vegna verkefna gærkvöldsins og næturinnar. Þar segir að ökumaðurinn hafi verið stöðvaður í Breiðholti á tíunda tímanum í gær. Að lokinni sýnatöku var ökumaðurinn frjáls ferða sinna og var honum þá vísað út úr lögreglustöðinni í Kópavogi. Ökumaðurinn fór þá ekki að fyrirmælum lögreglu þrátt fyrir að vera aðstoðaður út úr stöðinni. Hann sneri nefnilega alltaf aftur. Maðurinn var að lokum handtekinn fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu og vistaður í fangageymslu. Fram kemur í dagbókinni að rúmlega hundrað mál hafi verið skráð á frá klukkan 17 í gær til klukkan fimm í morgun. Nokkuð var um ölvunarakstur og þá hafði lögregla hendur í hári manns sem var eftirlýstur í öðru máli. Var hann stöðvaður í Hafnarfirði er hann var í ökuferð, sviptur ökuréttindum. Var honum komið fyrir í fangageymslum lögreglu í tengslum við rannsókn lögreglu á málinu sem hann var eftirlýstur í. Ekki kemur fram um hvaða mál er að ræða.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Erlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Fleiri fréttir Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Sjá meira