DOM og félagar felldu ísbjörninn

Snorri Rafn Hallsson skrifar
dom-2

Fyrir leikinn var Ármann í 4. Sæti en LAVA og Breiðablik höfðu jafnað Ármann að stigum fyrr í vikunni. SAGA var í 8. sæti, og gat skotið sér upp fyrir Viðstöðu með sigri.

Liðin mættust í Overpass og hafði SAGA betur í hnífalotunni eftir þrefalda fellu frá Skoon. SAGA hóf því fyrri hálfleikinn í vörn og tókst ADHD strax í fyrstu lotu að aftengja sprengjuna sem Hundzi kom fyrir. Leikmenn Ármanns, Ofvirkur, Criis og Hundzi, voru beittir í næstu lotum og komu Ármanni í 3–1.

SAGA náði að þétta raðirnar þegar bæði lið voru fullvopnuð og gengu endurtökuaðgerðir liðsins einstaklega vel. SAGA vann fimm lotur í röð og það sem eftir var hálfleiks tókst þeim að aftengja sprengjuna í annarri hverri lotu. Ármann krækti í tvær lotur til viðbótar en hittinn DOM og öruggur ADHD tryggðu SAGA gott forskot inn í síðari hálfleikinn.

Staða í hálfleik: SAGA 10 – 5 Ármann

Ármann vann fyrstu lotuna en ótrúleg redding WZRD á síðustu stundu í þeirri næstu, þar sem hann læddist aftan að leikmönnum Ármanns á sprengjusvæðinu hitaði undir SAGA. Þannig jók SAGA forskotið í 13–6 og átti stutt í land.

Ármann gaf hins vegar lítið eftir í vörninni og hafði ágætis stjórn á leiknum eftir það og hélt fjárhagi SAGA í skefjum. Ármann olli miklum skaða með handsprengjum og hafði góð tök á kortinu. SAGA nældi sér þó í nokkrar lotur hér og þar og það nægði til sigurs þegar DOM felldi Ofvirkan í 30. lotu.

Lokastaða: SAGA 16 – 14 Ármann

Hlé verður gert á Ljósleiðaradeildinni á meðan umspil fyrir Blast mótið fer fram. 

Næstu leikir liðanna:

  • TEN5ION–SAGA, þriðjudaginn 29. nóv., kl: 19:30
  • Ármann–Viðstöðu, fimmtudaginn 1. des., kl: 20:30

Sýnt verður frá leikjunum í beinni á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira