Lífið

Bein útsending: Rær í fimmtíu tíma til stuðnings Píeta

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Einar Hansberg
Einar Hansberg Aðsend

Einar Hansberg ætlar að vekja athygli á mikilvægu starfi Píeta-samtakanna á Íslandi með því að framkvæma æfingu sem inniheldur 56 kaloríur á Concept2-tæki, 10 upphífingar og 11 réttstöðulyftur á 15 mínútna fresti í alls 50 klukkutíma.  Vísir sýnir beint frá æfingunni.

Viðburðurinn fer fram í húsakynnum Afreks við Skógarhlíð og hefst klukkan 16:00. Horfa má á beina útsendingu frá æfingunni hér að neðan.

Píeta-samtökin vinna mikilvægt starf í að færa umræðunaum sjálfsvíg upp á yfirborðið og eru leiðandi í forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum hér á landi. 

 „Þetta er mál­efni sem snertir okkur öll og ætti ekki að liggja í þagnar­­gildi. Ég reyni að nýta þessi verkefni mín til að vekja fólk til umhugsunar í þágu einhvers góðs málefnis hverju sinni,“ segir Einar sem hefur áður lagt góðum málefnum lið með álíka hætti; lyft meira en 520 tonnum samanlagt í réttstöðulyftu á einum sólarhring, róið 500 kílómetra og synt samfleytt í tvo sólarhringa.

Til minningar um móðurbróður

„Mark­miðið með þessu verk­efni er að fá okkur öll til þess að hugsa hlýtt til þeirra sem þjást í eigin hugsunum og varpa ljósi á þau úr­­ræði sem í boði eru. Kveikjan að þessu var sú að fyrir réttu ári síðan lést móðurbróðir minn af slysförum en hann var mér afar náinn og kær og mig langaði til að gera eitthvað til að heiðra minningu hans. Hann var 56 ára gamall þegar hann dó þann 10.11. og ég yfirfæri þær tölur á þetta verkefni; þ.e. 56, 10 og 11.

 Ég ákvað að leggja Píeta-samtökunum lið að þessu sinni, meðal annars vegna þess að þegar ég var að undirbúa verkefnið hafði samband við mig einstaklingur sem hafði verið í sjálfsvígshugleiðingum fyrir fjórum árum. Það var á sama tíma og ég var í róðrarverkefninu sem var í streymi á netinu; viðkomandi sá þá útsendingu og ákvað að mæta á staðinn og róa með mér af fullum krafti og í framhaldi af því að leita sér hjálpar. Í dag er þessi einstaklingur á mjög góðum stað í lífinu og telur að róðurinn á sínum tíma eigi stóran þátt í því,“ segir Einar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×