Handbolti

Ómar og Gísli fóru á kostum í jafntefli gegn Bjarka og félögum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson halda áfram að gera það gott með Magdeburg.
Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson halda áfram að gera það gott með Magdeburg. Ronny Hartmann/picture alliance via Getty Images

Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson skoruðu samtals 15 mörk er Magdeburg gerði jafntefli gegn Bjarka Má Elíssyni og félögum hans í Telekom Veszprem í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld, 35-35. Þá var Haukur Þrastarson í liði Kielce sem vann þriggja marka sigur gegn Celje Lasko, 30-33.

Leikur Veszprem og Magdeburg var jafn og spennandi frá upphafi til enda og liðin skiptust á að hafa forystuna. Heimamenn í Veszprem náðu þriggja marka forskoti um miðjan fyrri hálfleikinn, áður en Magdeburg snéri taflinu við og náði þriggja marka forskoti í stöðunni 12-15, en heimamenn jöfnuðu metin fyrir hálfleik og staðan var 16-16 þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Svipaða sögu er að segja af síðari hálfleik þar sem liðin skiptust á að skora, en heimamenn náðu þó aftur upp þriggja marka forskoti í stöðunni 28-25. Gestirnir í Magdeburg voru þó ekki lengi að jafna metin á ný og við tóku æsispennandi lokamínútur.

Það voru að lokum heimamenn í Veszprem sem fengu tækifæri til að stela sigrinum í seinustu sókn leiksins, en inn vildi boltinn ekki og niðurstaðan því jafntefli, 35-35. Bjarki Már Elísson skoraði eitt mark fyrir Veszprem í kvöld, en þeir Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson fóru á kostum í liði Magdeburg og skoruðu samtals 15 mörk. Ómar skoraði átta og Gísli sjö.

Bjarki og félagar hans í Veszprem sitja nú á toppi A-riðils með níu stig eftir fimm leiki, tveimur stigum meira en Magdeburg sem situr í þriðja sæti.

Þá skoraði Haukur Þrastarson tvö mörk fyrir pólska liðið Kielce sem vann góðan þriggja marka útisigur gegn Celje Lasko á sama tíma, 30-33.

Kielce situr nú í öðru sæti B-riðils með átta stig eftir fimm leiki, en lið Celje Lasko situr í sjöunda sæti með tvö stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×