Bílar

Er til í að bjarga heiminum ef hann fær þetta mörg hest­öfl

Tinni Sveinsson skrifar
James Einar prófaði Polestar 2 rafbílinn á dögunum.
James Einar prófaði Polestar 2 rafbílinn á dögunum. Vísir/James

Bílaþættirnir Tork gaur halda áfram á Vísi í dag. Í þriðja þætti er rafbíllinn Polestar 2 tekinn fyrir.

James Einar Becker er stjórnandi þáttanna, Tork gaurinn sjálfur. Hann segir Polestar-deildina hjá Volvo hafa byrjað sem svipað verkefni og AMG hjá Mercedes, sem sinnti sérverkefnum og sérsmíði. Nú sé Polestar aftur á móti orðinn rafbílahluti Volvo-samstæðunnar og er Polestar 2 annar bíllinn sem kemur á markað undir þeim merkjum.

Hægt er að sjá þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Tork gaur - Polestar 2

Flottar felgur og góð drægni

James segir drægni bílsins góða, um 480 kílómetra. Einnig sé hægt að panta útgáfu sem drífur lengra. Hann segir kraftinn í bílnum mikinn, rúm 400 hestöfl, og hrífst af því.

„Ef rafmagnsbílar eru framtíðin og í því að bjarga heiminum felst að hafa 408 hestöfl undir hægri fæti þá er ég til,“ segir hann.

James er hrifinn af flottum felgum og staldrar sérstaklega við felgurnar á Polestar-bílunum. 

„Af öllum rafmagnsbílum sem eru á markaði finnst mér felgurnar á Polestar bestar. Álfelgurnar á Teslum og rafmagnsbílum frá BMW og Benz eiga það til að vera eins og pottlok. Ástæðan fyrir því að þær eru flatar er að þær eiga að draga úr vindmótstöðu, gott og blessað. En ég er af þeirri kynslóð að flottar felgur geta gert það að verkum að bílar hitta í mark hjá mér og ljótar felgur geta eyðilagt þá fyrir mér.“

Í þættinum fer hann einnig yfir Android-stýrikerfi bílsins, hljóðkerfið, ýmsa hjálparfídusa, hleðslutíma bílsins og fleira.


Tengdar fréttir

Byrjaði að mynda bíla átta ára og lætur nú drauminn rætast

„Minn bílaáhugi hefur alltaf verið undirliggjandi,“ segir James Einar Becker. Í næstu viku fer James af stað með nýja bílaþætti Tork gaur hér á Vísi. Á daginn vinnur hann sem markaðsstjóri en hann átti sér alltaf draum um að gera eigin bílaþátt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×