Innlent

Reykja­víkur­­borg hunsi út­hverfin þegar kemur að fegrun

Bjarki Sigurðsson skrifar
Fegrunarviðurkenningar Reykjavíkurborgar voru afhentar af borgarstjórn miðvikudaginn 19. október.
Fegrunarviðurkenningar Reykjavíkurborgar voru afhentar af borgarstjórn miðvikudaginn 19. október.

Tæplega sjötíu prósent af Fegrunarviðurkenningum Reykjavíkurborgar síðustu tíu ár hefur farið til lóða í Miðborginni eða Vesturbænum. Borgarfulltrúi Flokks fólksins gagnrýnir að úthverfin séu oftar en ekki skilin eftir. Þau hafa fengið einungis tæp tíu prósent viðurkenninga.

Borgarfulltrúi Flokks fólksins, Kolbrún Baldursdóttir, vakti athygli á málinu á fundi borgarráðs Reykjavíkurborgar í gær. Í bókun hennar við afgreiðslu viðurkenninganna segir hún að það þurfi að leggja áherslu á að dreifa valinu betur. 

„Það hefur verið lenska meirihlutans að einblína á ákveðinn miðsvæðis hring og hér er það enn og aftur gert. Reykjavík er stærri en einn miðsvæðisblettur. Aftur er spurt af hverju ekki megi horfa til annarra hverfa, t.d. Breiðholts, Árbæjar og Grafarvogs, ekki síst þegar kemur að vali fyrir falleg hús og lóðir,“ segir í bókun Kolbrúnar. 

43 á móti sex

Þessi gagnrýni Kolbrúnar á við rök að styðjast en frá árinu 2013 hafa 63 lóðir hlotið Fegrunarviðurkenningu Reykjavíkurborgar. Lóðir í Miðborginni eða Vesturbænum hafa fengið 43 þeirra, 68 prósent allra viðurkenninga.

Úthverfi borgarinnar, Árbær, Breiðholt, Grafarholt, Grafarvogur og Úlfarsárdalur, hafa einungis fengið sex þessara viðurkenninga. Tvær fóru til Árbæjar, báðar vegna lóða við Hádegismóa, þrjár til Breiðholtsins, tvær fyrir Maríubakka og ein fyrir Engjasel, og ein til Grafarvogs fyrir Starengi. 

Miðborgin og Vesturbærin skara af þegar kemur að viðurkenningum fyrir fegrun.Vísir/Kristján

„Að fá viðurkenningu af þessu tagi er hvatning fyrir fólk til að fegra umhverfi sitt. Hugmynd Flokks fólksins um að velja mætti eitt hús í hverju hverfi til að veita viðurkenningu hefur í tvígang verið lögð fram en hefur ekki náð eyrum skipulagsyfirvalda. Virkja mætti íbúðaráðin í þessu sambandi eða kalla eftir með skýrari hætti tilnefningum úr öllum hverfum,“ segir Kolbrún enn fremur. 

Elstu húsin í Miðborg og Vesturbæ

Borgarráðsfulltrúar meirihlutans í borgarstjórn segja að fegrunarviðurkenningarnar gangi út á að lyfta þeim verkefnum í endurgerð húsa og lóða þar sem vandað hefur verið til verka. 

„Eins og gefur að skilja eru flest húsaverkefnin í miðborginni þar sem elstu húsin eru. Þá eru einnig veittar viðurkenningar fyrir endurgerð lóða og lóðafrágang sem miðast ekki endilega við miðborgina,“ segir í bókun meirihlutans frá fundi borgarráðs. 

Verðlaunin í ár fóru til Freyjugötu 41, Nauthólsvegar 83, Stýrimannastígs 9, Mjóstræti 6 og Vesturgötu 51A. Einungis Nauthólsvegur er ekki í hverfi 101 og er í hverfi 102.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×